Feimnismál
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Báðar hliðar

Hér ætla ég að segja rúmlega hálfrar aldar gamla sögu frá Bandarikjunum --- sögu, sem allt eins hefði getað gerst í dag, því mér finnst sem þar sé að finna kveikjuna að þeim tvískinnungi sem verið hefur, og er, versti dragbíturinn á allar ofdrykkjuvarnir.

Og hér er sagan:

Í heyranda hljóði á framboðsfundi hrópaði blaðamaðurinn til ræðumanns og spurði:

Hver er afstaða yðar til áfengisins ?

Gamli lögfræðingurinn þurfti ekki að hugsa sig lengi um áður en hann svaraði. Hann hækkaði röddina, beindi sér til spyrjandans og sagði:

"Ekki hafði ég nú ætlað mér að ræða þetta mál núna, en úr því þér spyrjið og krefjist svars, þá skal ekki standa á mér, maður minn --- og svar mitt er þetta:

Ef þér með áfengi eigið við djöfladrykkinn, eitursullið, hina blóði drifnu ófreskju, sem saurgar sakleysið, kollsteypir góðum vilja og skapar eymd og örvæntingu, já, í orðsins fyllstu merkingu, tekur brauðið frá munni barnanna --- já, ef þér eigið við þetta bannsetta brugg, sem flæmir hinn kristna mann og hina kristnu konu frá heiðvirðu og grandvöru líferni, frá velvilja og ástúð niður í hið botnlausa díki smánar og örvæntingar, vonleysis og úrræðaleysis, já þá, - -já, herra minn, þá er ég á móti áfenginu af lífi og sál og af öllum mætti, huga og vilja ".

"Ég vona að þér skiljið mig" !

"En ef þér aftur á móti meinið áfengið sem hýrgar, áfengið sem glitrar í góðra vina hópi, sem lyftir huganum og lokkar fram bros á vör --- þetta brennivínstár, sem fær gamla manninn til að rétta úr sér og spretta úr spori á góðviðrisdegi og gleyma um stund öllu amstri og áhyggjum --- já, herra minn, ef þér meinið vökvan sem flytur ótaldar milljónir í Ríkissjóðinn svo til einhvers sé að grípa þegar borga þarf út ellistyrkinn og örorkulaunin --- þegar byggja þarf skólana eða sjúkrahúsin, vegina eða brýrnar, þá er ég --- já, herra minn, þá er ég af lífi og sál með brennivíninu".

Að þessu sögðu sneri frambjóðandinn sér að háttvirtum kjósendum sínum og sagði: "Þetta er skoðun mín og frá henni hvika ég ekki á hverju sem gengur. Ég ræði þetta ekki frekar --- þið vitið hug minn allan"!

=========

Þótt saga þessi sé orðin meir en hálfrar aldar gömul er hún samt enn í fullu gildi. Áfengisneysla er ennþá það viðkvæmnismál, að í kring um það er tiplað og menn veigra sér við að taka afstöðu til þess -- með eða í móti. Þetta er mjög skiljanlegt, því ef taka á einhæfa afstöðu stangast vonir og örvænting, gleði og sorgir, stöðugt á.

Steinar