Loksins
virðist hafa tekist að finna lausn á áratuga
tilraunum við að koma leitandi drykkjumanni til hjálpar
með sameiginlegu átaki félagslegra og heilsufræðilegra
aðgerða.
SÁÁ
-- Samtök Áhugamanna um Áfengisvandamálið
-- á rætur sínar að rekja til hóps
áhugamanna sem áttu það sameiginlegt að
hafa notið aðstoðar í eigin áfengisvandamáli
á meðferðarstofnunum vestur í Bandaríkjunum,
m.a. Freeport Hospital og Veritas Villa, með mjög góðum
og eftirtektarverðum árangri.
Strax, og jafnvel
áður en hinn jákvæði árangur
kom í ljós, stofnaði þessi hópur
þakklátra áhugamanna félagsskap sem bar
og ber heitið "Frípotklúbburinn"
SÁÁ
rekur uppruna sinn til þessa mannræktarhóps,
en eftir að hafa stofnað SÁÁ var strax hafist
handa á vetvangi. Fyrst var opnuð afvötnunarþjónusta
í Reykjadal í Mosfellsdal, síðan meðferðarþjónusta
að Sogni í Ölfusi, og eftir það hlóðst
hver silkihúfan upp af annarri og má þar nefna
Silungapoll, Staðarfell og Vog, en Vogur hefur það
fram yfir allt hitt að hann er með dúsk í
sinni húfu og sveiflar honum víða.
Þjónustu
SÁÁ eru gerð skil á öðrum stað
hér á Síðunni, (t.d. í
"sjukdomurinn" og er þeim sem leita aðstoðar
í ofdrykkjuvandamáli sínu eða sinna bent
á að smella þar.
St.G.
