FÚAHJALLUR

OG

FYLLIBYTTA

 

Hér verða tekin til meðferðar tvö atriði úr daglega ífinu. Annað er viðgerð á húsi, sem farið er að gefa sig. Hitt er viðgerð á manni, sem farinn er að láta á sjá.

Í báðum tilvikum er reiknað með þeim valkostum,

að bráðabirgðaviðgerð geti farið fram, -- annars allsherjarviðgerð.

 

H Ú S I Ð

1.

--btáðabirgðalausn—

 

    1. Festa lausar plötur og ditta að vatnsbettum og vindskeiðum. Huga að rennum og niðurföllum.
    2. Kalfatta með gluggum og þrælnegla blikk.
    3. Endurnýja stormjárn og krækjur og sponsa eða kítta rifur og gömul naglagöt, en skipta um sprungnar rúður.
    4. Skrapa og mála glugga, en tjarga eða mála þak.
    5. Bíða og vona að fúkkalyktin sé horfin og komi ekki aftur.

M A Ð U R I N N

1. bráðabirgðalausn---

 

    1. Afeitra hróið og hvíla það.
    2. Hvetja það til að skoða sjálft sig í spegli – og þrífa sig.
    3. Telja í það kjark.
    4. Sýna því alúð og tillitssemi á meðan líffæri eru að jafna sig undan ölvuninni.
    5. Næra það vel strax og það tekur við fæðu.
    6. Veita því frumfræðslu um tengslin milli drykkjuskapar og alkóholisma í von um að það sjái sjálft sig í dæminu
    7. Fá það til að ræða vandamál sín opinskátt, svo blekkingar víki og einangrun rofni.
    8. Reynt að fá það til að skynja hinn mikla mun sem er á því, að vera ófullur líkamlega og að vera algáður andlega.
    9. Reynt að gera fyrirbærinu ljóst að drykkjuskapur er millistig milli hófdrykkju og alkóhólisma.
    10. Því er rækilega gert ljóst, að varnarleysi þess gegn síendurtekinni ölvun, og vaxandi minnisglöp, séu augljósustu einkenni alkóhólisma. Benda má á að týnd bokka er týnd af því hún var falin í blakkáti.
    11. Hróinu, sem nú er að verða að hressum manni, er bent á A A til varnar því kæruleysi sem áður gerði úr manni hró.

 

Vitað er, að lengi er hægt að ditta svo að, að við verði unað um sinn. En því verður ekki í móti mælt, að öllu hálfkáki fylgir ómældur kvíði og blind áhætta. Samt væri reynandi að fá sér hamar, tjöru og nagla og ráðast gegn húsinu, eða, ef sinna á manninum (hróinu) leita til afvötnunarstöðvanna, en þær svara í símum: 581-2399 (S.Á.Á.) eða 560-2890 (Landsspítalinn).

H Ú S I Ð

2

---frambúðarlausn---

 

    1. Svipta járninu af kofanum.
    2. Huga að sperrum og stoðarendum og gluggaumbúnaði. Pikka þakklæðingu og klóra upsir og mæni.
    3. Skipta um þá hluta timburs sem gruna má um fúa. Fjarlægja lífræna einangrun (tróð og marhálm) og einangra á ný með ólífrænu (plasti, steinull, holrúmum).
    4. Loftræsa grunn ef holrúm er undir neðsta gólfi og loftræsa sperrubil og gæta þess að jarðfleti halli frá húsi eða að niðurfalli.
    5. Járna húsið og mála, en fúaverja allan óvarinn við
    6. Gera jafnharðan við það sem aflaga kann að fara við notkun eða veðrun.

M A Ð U R I N N

(--hróið--)

2.

Frambúðarlausn.

 

    1. Alkóhólisti sækir um endurhæfingu hjá S.Á.Á., sími: 581-2399 eða Landsspítala, sími: 560-2890.
    2. Alkóhólisti er skráður inn og fær leiðbeinanda, sem leitar trúnaðar hans. Hann verður aðilji að 8-10 manna hópi, sem samhæfir starf sitt á meðan á námsdvöl stendur.
    3. Hann sættir sig við skyldumætingu við alla fræðslu og fær vinnubók til eignar, en efni hennar ber honum að kynna sér rækilega og færa hana eins og til er ætlast.
    4. Hann sækir hópfundi virka daga, en á þeim fundum er höfðað til tilfinninga og félagslegs ástands og reynt að örva þátttakendur til að kafa í sjálfa sig og losa um kekki er fastir sitja.
    5. Á hópfundi eiga menn það sameiginlegt, að allir eru að leita brotalama í eigin fari. Mönnum lærist smám saman að beita ábendingum og taka ábendingum og andsvörum. Allir reyna að hjálpa öllum, en leiðbeinandi sér um að enginn yfirgangi annan, og að menn haldi sér við efnið.

       

    6. Undirstöður AA-stefnunnar eru kynntar rækilega og Reynsluspor AA. tekin fyrir og útskýrð, því reynslan er sú, að varanlegur bati er best tryggður með AA.

6. Fræðslufundir eru haldnir hvern virkan dag. Þar flytja leiðbeinendur og læknar erindi og reyna að koma til skila heildarmynd sjúkdómsins.

7. Í umræðum og á A A -fundum rýfur alkóhólistinn feimnismúr sinn og nýtur hægfara þjálfunar við að koma fyrir sig orði.

 

Gagnstætt hinum smærri hópfundum, sem höfða til einkalífs og tilfinninga, höfða fræðslufundirnir til árvekni og hugarlipurðar, en reynt er að koma þrjósku og þykjustuviti og sjálfumgleði á höggstokkinn. Reynt er að auðvelda nemandanum að átta sig á eðli meinsins og þróun, kynnast viðbrögðum eigin líkama og kynnast viðbrögðum samfélagsins. Fylgja spottanum þegar hann kuðlast í flækjuna frá drykkjuskap til alkóhólisma.

 

Endurhæfingin styðst mikið við AA-stefnuna og er því reynt að gera AA. sem allra best skil, -- enda byggist framhaldið á beinum tengslum við AA, ef því verður við komið, annars óbeinum.

 

Fræðslu endurhæfingasöðvanna má jafna við fúavörn hússins, því reynt er að byggja upp sálarlíf manna og auka þeim trú. Trú á tilveruna og trú á sjálfan sig svo þeir standi betur af sér súld og sagga daglegs lífs. Allt eins og húsið stæði nakið fyrir veðri og vindum ef það ekki væri tínt saman að lokinni innri viðgerð þannig stæði alkóhólistinn berskjaldaður án nokkuð staðgóðrar þekkingar á eðli sjúkdóms síns

LESARI !

 

Lestu kaflann um húsið aftur og settu sjálfan þig í hússins stað. Láttu hugann reika um uppistöður og þverslár lífs þíns og berðu saman saggann og loftleysið sem olli fúa hússins og saggann og loftleysið sem þjarmaði að sjálfum þér og umhverfi þínu. Þinn fúi orsakaðist af vangá, vanþekkingu og kæruleysi -- fúi hússins líka.

 

Allt eins og fnykur fúahússins einangrar íbúana jafnvel þótt þeir fari í sparifötin, einangrar feluleikur þinn sjálfan þig. Samruna við umhverfið nærðu ekki fyrr en þú losar þig við skemmdirnar í stoðar og sperruendum tilveru þinnar. Ekki fyrr en þú hættir að nota lýgi og blekkingar til að einangra þig frá eðlilegu lífi eðlilegs manns.

 

Einangrunartróð gamla hússins var neyðarúrræði, einangrunartróð sálarlífs alkóhólistans er líka neyðarúrræði --- en í báðum tilvikum má bæta um betur sé því sinnt. Nú er hægt að vinna á fúa hvort heldur er í lífi manns eða húss, svo er þekkingu og reynslu fyrir að þakka.

- Leiðbeinandi