GRÆÐANDI.

 

Ef þú kynnir að vera upp á kant við einhvern og fundið fáránleikann í því að vera upp á kant og vildir óska að þú værir ekki upp á kant ættirðu að kippa við þér næst þegar hinn á merkisafmæli eða flytur í nýja íbúð eða eignast erfingja, eða þ.u.l., slá á þráðinn og óska honum til hamingju.

Þarna gæti gerst kraftaverk jafnvel þótt þú hafir verið farinn að telja kraftaverk heyra fortíðinni til .

Eins gætir þú, ef þú átt ekki fyrir tækifærisgjöf, eða hefur ekki tækifæri til að senda gjöf til vinar sem þig langar til að gleðja, hringt og látið heyra í þér.

Ein slík hringing gæti jafnast á við bros, en bros getur verið dýrðlegasta gjöf sem hægt er að gefa -- og ekkert er jafn græðandi í sinnuleysissárin.

Stundum þarf ekki að kveikja nema á lítilli týru til að ratljóst verði.

 

 

 

.