Maður
skyldi ætla að AA stefnan vilji öllum vel. En samt
getur hún verið grimm. Þótt AA segi mér
ekki að ýta grátandi drykkjumanni frá mér
þá hika ég ekki við það ef í
það fer.
Ég geri
það í þeirri trú að þannig
gæti ég hjálpað viðkomandi til að
hjálpa sér sjálfur.
Það
gæti þurft að stinga honum inn til að forða
honum frá að fara sér að voða. Vel má
kalla þetta grimmd.. En strax og vottur af raunverulegri sjálfsbjargarviðleitni
birtist hjá manninum þá stendur ekki á
AA
Afskiptasemi er
skiljanlegur slettirekuskapur, en leiðir yfirleitt ekki til
góðs. En í hugljóman frá AA mundi
ég samt ekki hika við að taka bíllyklana með
valdi af drukknum manni sem ætlaði að setjast undir
stýri. Ég gæti fleygt í þeim sjóinn
ef á þyrfti að halda.
Að hjálpa
manni gegn vilja hans getur verið réttlætanlegt.
