Sá
misskilningur hefur læðst inn í huga margra að
ekkert nema AA sé þess megnugt að hjálpa
drykkjumanni til að hætta að drekka. Þetta
er mesti misskilningur.
Að
vísu hafa AA samtökin sannað getu sína á
þessu sviði, en aðrar stefnur hafa líka sannað
sig. Bindindisfélög hafa hjálpað það
mörgum að ekki verður tölu á komið.
Sama er að segja um margvísleg trúfélög,
íþróttafélög, ferðafélög
og önnur menningarfyrirbæri.
Hnútukast
verður umfram allt að forðast í þessum
efnum.
Hvort
það svo er AA eða eitthvað annað mannræktarfyrirbæri
sem fær drykkjumanninn til að vakna til vitundar um tilgang
lífsins skiptir engu -- bara hann vakni.
Stífni
er ekkert til að skammast sín fyrir. Hún er bara
meinloka. Nokkurs konar bensínstífla.
Hvort
brautin er bein eða krókótt er ekki aðalatriðið.