Lausnin byggist á samstarfi.

 

Varast skyldi að dæma annan eftir því hvort hann kynni að vera það sem kallað er fyllibytta.

Enginn skyldi gleyma því, að drykkjumaður er ekkert öðruvísi en aðrir menn, hann hagar sér bara öðruvísi á sumum sviðum – stundum.

Vitað er að mörg stórfyrirtæki erlendis sækjast frekar eftir að fá endurhæfða alkóhólista til vinnu heldur en helgardrykkjumenn. Þetta er bara einfalt reiknisdæmi. Sá sem drekkur þótt hann þykist ekki drekka getur átt eftir að stórskaða fyrirtækið með 5-10 ára laumudrykkju, en lendi endurhæfði alkóhólistinn á fylliríi þá er það engin elsku mamma, allir vita að hann er fullur og því auðvelt að gera viðeigandi ráðstafanir. Hér í Reykjavík hefi ég orðið var tilhneigingar hjá ráðamönnum fyrirtækja til að taka tillit til þessara staðeynda -- og tek ég ofan fyrir þeim.

En þessu fylgir viss hætta, sú, að alkóhólistinn fari að líta á sig sem eftirtektarvert fyrirbæri og láti ekkert tækifæri ónotað til að benda á "sjúkdóm" sinn og miklast jafnvel af honum. Þetta er slæmt fyrir almennar ofdrykkjuvarnir því auðvitað er slík klikkun ekki fastur liður í batanum. Indíáni er Indíáni hvort heldur hann er alkóhólisti eða ekki.

Alkóhólismi er ástand, líka kallað sjúkdómur. Eðli "sjúkdómsins" er þekkt. Þetta er stigvaxandi og versnandi ástand, afleiðing drykkjuskapar og bundið skaphöfn mannsins og framkomu. Við þetta ástand er hægt að ráða með því að stöðva drykkjuskapinn. Allt sem til þarf er hugarfarsbreyting og löngun vínneytandans til að þiggja skilyðislaust þá leiðsögn sem í boði er. Síðasta áratuginn, eða svo, er stöðugt að renna betur og betur upp fyrir mönnum að endurhæfing frá alkóhólisma er vissulega þess virði að eftir henni sé leitað. Það sýna dæmin. Að vísu er langt frá því að allir nái árangri, en mikill meiri hluti nær því marki sem að er stefnt.

En hvað gerist við endurhæfinguna ? Hvað er það sem ræður því að maðurinn breytir stefnu ?

Ég hefi nokkuð víða fylgst með endurhæfingu þar sem ólíkum aðferðum hefur verið beitt, bæði á Íslandi, Bretlandseyjum og nokkrum stöðum vestan hafs. Fyrir utan það að hafa hjálpað mönnum til varanlegs bata eiga þessar stöðvar eitt sameiginlegt, það, að láta alkóhólistann finna fyrir því og sætta sig við það, að sjálfur hafi hann kallað þennan sjúkddóm yfir sig og sjálfur geti hann stöðvað virkni hans -- en enginn annar

Sagt með öðrum orðum, felst endurhæfingin í því, að vekja manninn upp af dvala sjálfsblekkinga. Allt of sumt. Þetta er mergur endurhæfinganna.

Með fjögurra vikna dvöl og fræðslu á vernduðum stað þar sem margir koma saman í einum og sama tilgangi hefur tekist giftusamlega að vekja manninn til átaka og árangurs við að vinna á þessu meini sínu. Og ekki má gleyma því, að allar þessar stofnanir eiga það sameiginlegt, að þeim er ljóst að án AA. gætu þær ekki skilað árangri. Þær hafa tekið AA. í þjónustu sína og byggja alla endurhæfingu á AA-stefnunni, undirstöðu allra nútíma ofdrykkjuvarna.

Í persónulegum viðtölum og hnitmiðuðum fyrirlestrum er auðvelt að halda AA-stefnunni vakandi og kafa ofan í anda hennar á ýmsa vegu. En á opinberum vetvangi er ekki hægt að halda uppi áróðri í þá átt, því AA-starfið byggist á aðlöðun, en ekki áróðri. Um leið og áróðri er beitt í tengslum við AA. er andi stefnunnar kæfður. Áróður kallar á andsvar og andsvar á togstreitu. Með áróðri yrði grundvellinum kippt undan þeim óeigingjarna kærleika sem er uppistaða AA-starfsins. Kærleikur verður hvorki metinn, flokkaður né veginn. Þetta vita og eiga þeir að vita sem starfa við endurhæfnguna, og skipa því engum að sækja AA-fundi, jafnvel þótt augljóst sé, að sá sem fundi sækir á batavonina nokkurn vegin vísa, hinn síður. Það er hægt að laða menn til fundarsóknar, en ekki reka þá á fund.

Allt eins og vatnið, sem kemur til mín úr krananum, kemur úr stórum tönkum og víðfeðmum uppsprettum, þá veit ég, að þeir drykkjumenn sem koma til endurhæfingar hafa seitlað frá stórum hópi manna, sem standa í bullandi vandræðum. Væri hægt að fá þessa menn til að kynna sér eðli odrykkju og alkóhólisma og leita stíflunnar sem varnar þeim frelsisins, eru líkur til að bjartara yrði umhverfis margan manninn og heimili hans.

Steinar.

- - - - -