SAMTÖKIN

 

AA-samtökin eiga uppruna sinn vestur í Bandaríkjunum. Þau kviknuðu meðal drykkjumanna í New York og Cleveland árið 1935. Þau náðu fótfestu á Ísland 1954 með stofnun fyrstu deildarinnar í Reykjavík og skiluðu strax stórkostlegum árangri.

Þessi fyrsta deild, Reykjavíkurdeildin, varð fljótt mjög öflug í félagslífi borgarinnar án þess þó að falla frá þeirri bjargföstu stefnu sem AA markaði sér í upphafi:

-- -- að AA deild ætti aldrei að standa að, leggja fé til eða lána nafn AA- samtakanna neinum skyldum eða óskyhldum samtökum, hverju nafni sem þau nefnast, til þess að fjármunir, eignir eða upphefð fjarlægi okkur ekki hinum upphaflega tilgangi.

Nú eru samtökin dreifð um allt land og deildir orðnar það margar og það víða að vilji maður fara á AA-fund þá kemst maður.

En enginn skyldi í ógáti rugla saman þeirri endurhæfingarstarfsemi, sem rekin er í anda AA-stefnunnar á stofnunum og því sem venjulegur AA-fundur býður uppá.

Já, bara venjulegur AA-fundur