Hvers
vegna vakir sannleikurinn yfir vötnum á AA fundum? Hvers
vegna öll þessi hreinskilni? Verða AA menn heilagir
svona sjálfkrafa?
Nei,
ekki aldeilis. Slúbbertar hætta ekki að vera slúbbertar
bara við það eitt að fara á AA fund. En
hreinskilnin, sem þar ríkir, er samt staðreynd,
og hún á sínar orsakir.
AA
fundur er samsafn drykkjumanna. Allir eru þeir sérfræðingar
í drykkjuskap og þekkja bæði þá
líðan og þá klæki sem drykkjuskap
eru samfara. Menn reyna ekki að ljúga að sérfræðingum
í þeirra eigin fagi. Þarna er lygi því
tilgangslaus jafn lengi og drykkjumenn stjórna ferðinni.
En
hreinskilnin getur orðið manni eiginleg, ekki síður
en annað sem maður temur sér, og með því
að sækja AA fundi aftengjumst við óhreinskilninni
---- erfiðasta dragbít drykkjuskaparins
Drykkjumaður
fær glóðarauga við að rekast á hurð
í myrkri, aðrir fá glóðarauga í
slagsmálum.
