
Hér má nálgast stundarskrá
vikunar
Hlutverk
og markmið Tónlistarskólans.:
Í aðalnámsskrá tónlistarskóla, útgefinni af
menntamálaráðuneyti í febrúar 1996 segir:
Við gerð skólanámsskráa er tónlistarskólum ætlað að taka mið af
stefnumörkun og meginmarkmiðum aðalnámsskrár tónlistarskóla og greinanámsskráa,
ásamt því að sinna staðbundnum og sérhæfðum markmiðum. Skólanámsskrá mun taka
mið af aðstæðum á hverjum stað og einstakir skólar hafa svigrúm til að leggja
eigin áherslur í skólastarfinu.
Hlutverk Tónlistarskóa Reykhólahrepps er að
stuðla að öflugu tónlistarlífi, jafnframt því að vinna að aukinni hæfni,
þekkingu og þroska einstaklinga. Áhersla skal lögð á að skólinn þjóni öllum
þeim sem eftir tónlistarnámi sækjast án tillits til aldurs, ennfremur ber skólanum
að taka tillit til margbreytilegra áhugasviða nemenda, getu þeirra og þroska.
heimavinna
Tónlistarnám byggist á góðri samvinnu nemanda
og kennara. Nemandi nýtur tilsagnar kennarans að meðaltali eina (2x30) mínútur) og
fer því árangur námsins eftir því hversu vel nemendur stunda heimavinnu sína.
Mikilvægt er að nemandinn fái góðan stuðning og hvatningu heima fyrir.
Árangursríkara er að ungir nemendur æfi sig oftar og skemur í senn en sjaldnar og
lengur. Mikilvægt er að nemendur stundi námið af samviskusemi og standist þær
kröfur sem skólinn gerir.
|