STELLIÐ STILLT

Hvernig reiðhjól hentar mér best?
Það vorar og veður batna, margir fara að huga að reiðhjólum sínum, pumpa í dekkin, þurrka rykið, smyrja og fara út að hjóla. Aðrir fara í hjólabúðirnar til að velja sér eða sínum ný reiðhjól. Kemur þá í ljós að mikill frumskógur er þar og erfitt að fóta sig á þeim stígum. Þá eru skoðanir manna afar skiptar á því hvers konar hjól henti hverjum.Grein þessari er ætlað að hjálpa þér við val á réttu reiðhjóli fyrir þig og þína notkun. Lesið alla grein Björns Finns sem einnig fjallar um öryggismál, barnahjólreiðar og lög og reglugerðir um hjól og hjólreiðar.

Yfirförum hjólin á vorin
Það þarf ekki endilega að kaupa nýtt hjól þegar áhuginn vaknar á að stíga á sveif því margir eiga reiðhjól sem hafa staðið inni í geymslu lengi óhreyfð og má vekja af dvala með nokkrum olíudropum því að rifja upp vorverk hjólreiðamannsins.

Val á réttri stell stærð
Það er að ýmsu að huga þegar spáð er í kaup á nýju reiðhjóli en stundum gleymist aðalatriðið, að stellið sé af réttri stærð fyrir þig og að þú sitir í réttri stellingu á því.

Kvennahjól og karlahjól 
"Það er fullt af konum sem hjóla af alvöru og þær þurfa góð hjól." sagði Georgena Terry og sló hnefanum í borðið þegar konur fóru að sækja hana heim og kvarta yfir hjólum sem pössuðu illa og meiddu. Hún stóð við orð sín og hóf framleiðslu á hjólum sérsniðnum þörfum kvenna. "Fertug kona með hnakk sem meiðir vill ekki tala um það við 16 ára afgreiðslustrák, og hann vill ekkert heyra um slíkt."

Ferðast um á hjóli
Jón Örn gefur þér góð ráð um val á búnaði ef þú hefur í hyggju að prófa að ferðast á reiðhjóli og Magnús Bergsson enn nánari upplýsingar og viðrar sínar skoðanir í bland. Og ef þeir svara ekki öllum þínum spurningum geturðu gluggað í ensku leiðbeiningarnar okkar fyrir erlenda ferðamenn eftir Pál Guðjónsson og fl.

Tengivagnar og tengihjól
Magnús Bergsson gerði úttekt á tengivögnum og tengihjólum sem auðvelda hjólreiðafólki við alla flutninga og gera fjölskyldufólki kleyft að bjarga sé án einkabíls. Í vorblaði Hjólhestsins kom svo framhaldsgrein þar sem Magnús fjallaði um Cannondale Caboose vagninn og Helgi Erlendsson fjallaði um Baby Jogger hjólavagninn. Í fjölskylduferðinni okkar til Nesjavalla í maí 98 mátti sjá ýmsar gerðir tengivagna og tengihjól í notkun. Skoðið myndir úr ferðinni.

Hjólreiðar eru líka fyrir fatlaða
Nokkuð sem lítið hefur sést hérlendis enn sem komið er eru sérhönnuð hjól fyrir fatlaða og "recumbent" hjól sem þykja einstaklega þægileg enda situr hjólreiðamaðurinn eins og í hægindastól í breiðu þægilegu sæti. Slík hjól eru bæði fáanleg með tvemur og þremur hjólum undir. 
Darren Swift kom hér og hjólaði um landið
á handaflinu einu saman í hjólastólnum sínum sem var með einföldum hætti breytt í handknúið þríhjól. Lesið hér um útbúnaðinn hans og hér er umfjöllun hans um ferðina og ferðamátann.

Vetrarbúnaður
Þegar vetrar þarf að huga að ýmsu, svo sem að setja nagladekkin undir, góð fram- og aftur ljós á hjólið og klæða sig rétt.  Við höfum birt nokkra pistla um þessi mál í fréttabréfi klúbbsins Hjólhestinum. Magnús Bergson hefur verið duglegur við skrifin og er vert að lesa ýtarlegar úttektir hans 2000, 1998 og 1997 og hér er grein eftir Heimi H. Karlsson.  Ef þér er kalt á eyrunum og gengur illa að troða húfu undir hjálminn er bráðsnjallt að setja eyrnarhlíf á hjálminn sjálfan og í leiðinni má líka setja smá hlíf á hnéin eins og Pétur Magnússon sýnir hér.

Ljósabúnaður á hjólið
Hér eru í stuttu máli nokkur atriði sem ber að athuga eins og hvaða reglur gilda um ljósabúnað hjóla.

Magnús Bergsson hefur gert nokkrar ýtarlegar úttektir á ljósabúnaði.  Mörg ljósanna eru enn á markaðinum en auðvitað er úrvalið og verðin síbreytileg.  Lesið pistlana frá 2003, 2000, 1999, 1998 og 1996.

Flest notum við hleðslurafhlöður í ljósin okkar til að vera ekki að bruðla með batterí en annar valkostur eru rafalar fyrir reiðhjól. Eins og annað eru þeir mismunandi að gæðum en bestir eru nafrafalar. Helstu kostir þeirra er að þeir tapa aldrei gæðum sínum við mismunandi skilyrði, t.d. í snjó og rigningu, eins og hefðbunu rafalarnir. Einstakega lítð tap vegna núnings. Ekkert slit í rafal eða á dekki. Gersamlega hljóðlausir. Langlífir án viðhalds.

Stöndum klár á umferðarlögunum
Það gilda sömu umferðarreglur fyrir hjólreiðamenn á götunum og bíla en það eru einnig í gildi sér reglur um reiðhjól sem allir ættu að standa klárir á.

Hjólað í vinnuna.
Að hjóla til og frá vinnu er valkostur sem margir nýta sér, og þarf hvorki að vera erfitt né flókið í framkvæmd. Það eina sem þarf er nothæft hjól, vilji og áhugi. Lesið alla greinina hans Heimis H. Karlssonar

Nokkrar tæknigreinar:

Stýrislegur.
 
Hér er pistill Magnúsar Bergs um stýrislegur sem birtist í fréttabréfinu okkar 1.tlb 11.árg.

Giant Revive   ... Lazy-Boy hjólreiðamannsins
...Það er engin spurning. Þetta er hjól sem fólk ætti virkilega að spá í. .... Það opnar nýjan heim fyrir marga sem fram til þessa hafa ekki getað hjólað á venjulegu reiðhjóli. Fyrir aðra er þetta skemmtilegur valkostur með hefðbundnu reiðhjóli.   Lesið alla umsögn Magnúsar hér.

Smellupedalar
Fullt af fyrirtækjum hafa reynt að einfalda hönnun SPD smellu pedalanna enda var það nokkuð ljóst strax í upphafi að pedalarnir frá LOOK og Shimano voru óþarflega efnismiklir. Komu því framleiðendur eins og Bebop, Speedplay, Time, Onza og Crank Brothers fram með einfaldari pedala. Nú fyrir skömmu kom Crank Brothers með endurbætta útgáfu af sínum fyrri pedala sem þeir kalla EggBeater og fengið hefur góðar viðtökur erlendis. Lesið hér alla grein Magnúsar Bergs um smellupedala.

 

Páll Guðjónsson

Yfirlit