Sími: 55 10 100
Fax: 55 100 35
Sumarjazz á Jómfrúnni 2010
Alla laugardaga í júní og júlí
Hefst klukkan 15:00 og stendur til 17:00
Aðgangur ókeypis
Dagskrár- og kynningarstjóri: Sigurður Flosason
5. júní
Latín kvartett Tómasar R. Einarssonar
Hressilegur suðrænn taktur hefur sumardagskrána í ár.
Samúel J. Samúelsson: básúna, Ómar Guðjónsson: gítar, Tómas R. Einarsson: kontrabassi, Matthías Hemstock: trommur
12. júní
Stína Ágústs og félagar
Íslenska jazzsöngkonan Kristín Ágústsdóttir býr og starfar í Montreal í Kanada og gengur vel. Jómfrúin er stolt af því að kynna hana fyrir íslensku jazzáhugafólki.
Kristín Ágústsdóttir: söngur, Sigurður Flosason: saxfónn, Kjartran Valdemarsson: píanó, Valdemar K. Sigurjónsson: bassi, Einar Scheving: trommur.
19. júní
Kvartett Árna Heiðars Karlssonar
Árni Heiðar var tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir síðustu plötu sína, Mæri. Nú teflir hann fram nýjum og spennandi kvartett.
Árni Heiðar Karlsson: píanó, Ari Bragi Bragason: trompet, Þorgrímur Jónsson: kontrabassi, Einar Scheving: trommur.
26. júní
Cathrine Legardh og félagar
Cathrine Legardh er ein af vinsælustu jazzsöngkonum dana um þessar mundir.
Catrine Legardh: söngur, Sigurður Flosason: saxófónn, Eyþór Gunnarsson: píanó, Þorgrímur Jónsson: bassi, Eric Quick: trommur.
3. júlí
Guitar Islandico
Þessi feikivinsæla hljómsveit kemur nú í fyrsta sinn fram á Jómfrúnni.
Björn Thoroddsen: gítar, Hjörtur Steinsson: gítar, Jón Rafnsson: bassi.
10. júlí
Tríó Sunnu og Andrésar Þórs
Vel samspilað tríó Sunnu Gunnlaugsdóttur tekur á móti gítargestinum Andrési Þór.
Sunna Gunnlaugsdóttir: píanó, Andrés Þór Gunnlaugsson: gítar, Þorgrímum Jónsson: kontrabassi, Scott McLemore: trommur
17. júlí
Sporðdrekarnir
Nýtt jazzfunk band með gamla sniðinu að hætti Adderley bræðra og annara hleypir stuðinu á torgið.
Haukur Gröndal: söngur, Ásgeir J. Ásgeirsson: gítar, Agnar Már Magnússon: hljómborð, Hannes Friðbjarnarson: trommur og söngur.
24. júlí
Tríó Andrésar og Birkis Freys
Pottþétt tríó Andrésar býður trompetleikarunum Birki Frey í heimsókn.
Andrés Þór Gunnlaugsson: gítar, Birkir Freyr Matthísasson: trompet: Róbert Þórhallsson: kontrabassi, Scott McLemore: trommur
31. júlí
Kvartett Ragnheiðar Gröndal
Ragnheiður kemur beint frá Berlín, syngur jazzstandarda eins og henni einni er lagið og slær botninn í dagskrá sumarsins.
Ragnheiður Gröndal: söngur, Guðmundur Pétursson: gítar, Þórður Högnason: kontrabassi. Líklegt að gestir kíki í heimsókn.
Leikið verður utandyra á Jómfrúartorginu
DAGSKRÁIN GETUR TEKIÐ BREYTINGUM