Svæðisstjóri á umdæmisstjórnarfundum
|
Umdæmisstjórnarfundir starfsársins er þrír. Fyrsti fundur er yfirleitt haldinn í lok ágúst eða byrjun september, annar í nóvember og sá þriðji í mars.
Auk þess er oftar en ekki haldinn einn fundur til viðbótar í maí sem einskonar uppskeruhátíð. Svæðisstjóri hefur skyldumætingu á þessa fundi. Hlutverk á umdæmisstjórnarfundum: 1. Flytja fréttir af gangi mála á sínu svæði og stöðu klúbbanna. Varast ætti að telja upp verkefni hvers einasta klúbbs heldur aðeins segja frá
genginu almennt.2. Bera upp erindi sem samþykkt hafa verið á svæðisfundum eða sem klúbbar óska eftir að koma á framfæri við umdæmistjórn. 3. Fylgjast með því sem efst er á baugi innan umdæmisins og hreyfingarinnar og geta þannig miðlað fróðleiknum áfram til klúbba svæðisins. 4. Gefa umdæmisstjórn ráð varðandi samskipti við klúbbana, varðandi þá klúbba sem þurfa á aðstoð að halda og klúbba sem óska eftir námskeiðum eða einhverju öðru frá umdæminu. 5. Taka þátt í umræðum um þau málefni sem á dagskrá eru. Á þessum vettvangi virkar svæðisstjóri einna best sem tengiliður milli klúbba og umdæmisstjórnar. |