Embætti svæðisstjóra
|
Stundum er sagt að svæðisstjóri sé fulltrúi grasrótarinnar í Lionshreyfingunni. Við val á svæðisstjóra ætti að taka tillit til þess að viðkomandi sé
líklegur til að hafa virkan áhuga á málefnum og velferð klúbbanna á svæðinu. Embætti svæðisstjóra er ekki heiðursembætti og ætti því aldrei að velja aðila í embættið í þeim tilgangi að heiðra viðkomandi. Ekki ætti heldur að velja aðila frá klúbbi sem líklegt er að þurfi á leiðsögn hans eða aðstoð að halda. Velja ætti aðila sem hefur leiðtogahæfileika og er vel liðinn á svæðinu. Embætti svæðisstjóra er talið eitt það mikilvægasta innan Lionshreyfingarinnar, ef því er sinnt eins og gert er ráð fyrir. Svæðisstjóri leiðbeinir stjórnum klúbba eftir þörfum og reynir að skera úr um ýmis vafamál sem upp kunna að koma. Ef með þarf sækir hann sér aðstoð og þá fyrst og fremst til umdæmisstjóra. Aðrir embættismenn fjölumdæmisins og / eða umdæmisins eru einnig viskubrunnur sem sótt er í. ![]() Svæðisstjóri er æðsta embætti Lionshreyfingarinnar á svæðinu. Þó að svo sé, þá hefur svæðisstjóri ekkert vald yfir klúbbunum og getur því ekki sagt þeim fyrir í verkefnavali eða öðru. Hlutverk hans er að vera fræðslustjóri, ráðgjafi og tengiliður og er það útskýrt nánar annarstaðar á síðunni. Svæðisstjóri heldur sína fyrstu fundi í lok ágúst eða byrjun september með stjórnum klúbba til að undirbúa vetrarstarfið. Fundurinn er haldinn til að gefa viðkomandi aðilum tækifæri til að kynnast, fara yfir ýmsar reglur og það sem efst er á baugi innan hreyfingarinnar. Svæðisstjóri heldur síðan þrjá svæðisfundi á starfsárinu. Fundina skal halda í september, nóvember og í mars - apríl. Gott er að setja strax í upphafi starfsárs dagsetningar og staðsetningar fundanna og kynna það fyrir stjórnum klúbbanna. Þannig gefst öllum tækifæri til að setja þá inn í sína dagskrá og eiga því auðveldara með að skipuleggja starfið. Það getur verið betra að fresta fundi af óviðráðanlegum ástæðum en að boða fundi með mjög skömmum fyrirvara. Til svæðisfunda skal boða skriflega með tveggja vikna fyrirvara. Fundarboðið ætti að senda bæði formönnum og riturum klúbba. Æskilegt er að svæðisstjóri setji sér eitthvert markmið fyrir starfsárið. Hann verður þó að taka tillit til þess að hans markmið mega undir engum kringumstæðum skyggja á eða vera andstæð markmiðum alþjóðaforseta eða umdæmisstjóra. |