Klúbbheimsóknir svæðisstjóra
|
Í strjálbýli er æskilegt að svæðisstjóri sé einskonar leiðsögumaður umdæmisstjóra þegar hann heimsækir klúbbana. Í þéttbýli er svæðisstjóri að
sjálfsögðu einnig velkominn í heimsóknir með umdæmisstjóra. Það er þó ávallt umdæmisstjóri sem tekur ákvarðanir varðandi slíka fylgd. Fylgi svæðisstjóri umdæmisstjóra í heimsóknir skal hann muna að þetta eru fundir umdæmisstjóra og svæðisstjórum ekki ætlað neitt sérstakt hlutverk á þeim nema umdæmisstjóri óski eftir því sérstaklega. Aðrar heimsóknir ættu að vera eftir samkomulagi við klúbbstjórnir og umdæmisstjóra. Að eigin frumkvæði:Í ávarpi sínu á klúbbfundi skýrir svæðisstjóri til dæmis frá starfi sínu og starfsreglu, flytur fréttir af starfinu í umdæminu og á svæðinu, fyrirhuguðu samstarfi og ýmsu öðru. Í fylgd umdæmisstjóra: Í slíkri heimsókn hefur svæðisstjóri ekki sérstöku hlutverki að gegna nema umdæmisstjóri óski sérstaklega eftir því. Að beiðni umdæmisstjóra: Sú staða getur komið upp að umdæmisstjóri óski eftir að svæðisstjóri heimsæki klúbb í sérstökum erindagjörðum. Svæðisstjóri sinnir þeim erindum fyrir umdæmisstjóra og heldur sig eingöngu við það sem umdæmisstjóri óskar eftir. Að beiðni klúbbstjórnar. Ósjaldan biðja klúbbstjórnir svæðisstjóra að koma á klúbbfund og flytja fræðslu um eitthvert sérstakt málefni. Svæðisstjóri sinnir því, telji hann sig hafa þekkingu til eða óskar eftir aðstoð þess aðila á fjölumdæmisráði eða umdæmisstjórn sem hefur með máefnið að gera. Einnig kemur fyrir að klúbbstjórnir óski eftir nærveru svæðisstjóra á stjórnarfundum og þá oftast til að leysa úr einhverju vandamáli sem upp hefur komið. Hafa skal samráð við umdæmisstjóra varðandi allar slíkar fræðsluferðir. ![]() Svæðisstjóri skal hafa það hugfast í öllum sínum heimsóknum að hanna er ekki þangað kominn til að sína eitthvert vald yfir klúbbnum, því það hefur hann alls ekki. Hann er þangað kominn til að gefa góð ráð og miðla af sinni reynslu og þekkingu. Svæðisstjóri lætur klúbbstjórnir eða almenna klúbbfélaga aldrei finna að fyrir afskiptasemi. Svæðisstjóri reynir að láta viðkomandi aðila finna að fylgst sé með klúbbnum af áhuga fyrir gengi þeirra. Markmið allra heimsókna er: Að efla tengsl milli klúbba, svæðisstjóra og umdæmisstjóra. ![]() Önnur samskipti: Önnur samskipti við klúbbstjórnir ættu að vera sem tíðust. Gott er til dæmis að hafa samband við formann klúbbs einu sinni í mánuði til að spyrja hvernig gangi. Þannig er hægt að láta formanninn finna að einhver utan klúbbsins hefur áhuga á því sem þeir eru að gera. Umfram allt er þó að láta formenn aldrei finnast sem einhver utanað komandi sé að skipta sér af þeirra starfi. Skýrslu um heimsókn sína skal hann senda umdæmisstjóra og varaumdæmisstjóra. Sérstaklega skal geta um veikleikamerki verði þess vart hjá klúbbum. |