Aðalsíða

Hlutverk svæðisstjóra


Í aðalatriðum er hlutverk svæðisstjóra að vera formaður ráðgjafanefndar umdæmisstjóra á svæðinu. Fyrst og fremst á svæðisstjóri að virka sem tengiliður milli umdæmisstjóra annars vegar og sérhvers klúbbs svæðisins hins vegar.
Fyrir hönd umdæmisstjóra, sem er ábyrgur fyrir öllum klúbbum umdæmisins, er svæðisstjóri fulltrúi Alþjóðasamtaka Lionsklúbba á sínu svæði.
Nánar tilgreint skiptist starf svæðisstjóra í þrjá megin þætti:
Svæðisstjóri er alsherjar fræðslustjóri, ráðgjafi og tengiliður.


Svæðisstjóri sem fræðslustjóri.
Svæðisstjóri gegnir mjög stóru hlutverki í fræðslustarfi hreyfingarinnar. Segja má að starfsár svæðisstjóra hefjist í lok ágústmánaðar eða byrjun september með fræðslufundum fyrir klúbbstjórnir.
Hlutverk svæðisstjóra sem fræðslustjóra er þó mikið stærra en það. Hann notar hvert tækifæri sem gefst til að koma á framfæri upplýsingum um það sem efst er á baugi í hreyfingunni.
Á svæðisfundi getur hann fengið eitthvað af þeim námskeiðum sem í boði eru eða fræðslu um það sem efst er á baugi hverju sinni. Hann býður klúbbum að vera þeim innan handar um útvegun fræðsluefnis á klúbbfundi.
Hann stendur fyrir því að haldin séu námskeið á svæðinu eða í klúbbunum. Treysti hann sér til að halda slík námskeið sjálfur getur hann farið þá leið eða að hann getur fengið einhverja af þeim fjölmörgu leiðbeinendum sem vinna með fræðslustjóra hreyfingarinnar.
Að öllu jöfnu skal leggja höfuðáherslu á fræðsluefni um Lionshreyfinguna, einstaka málaflokka og hlutverk embættismanna, jafnt embættismanna innan klúbba og annarra embættismanna hreyfingarinnar.

Svæðisstjóri sem ráðgjafi.
Að eigin frumkvæði, að ósk umdæmisstjóra eða að beiðni klúbbstjórna getur svæðisstjóri setið stjórnar- eða klúbbfundi og gefið góð ráð.
Svæðisstjóri leitast við að skera úr um hvers konar vafamál. Þar sem þekkingu hans þrýtur er nauðsynlegt að leita aðstoðar umdæmisstjóra eða varaumdæmisstjóra.
Einnig er hægt að leita til annarra embættismanna fjölumdæmis eða umdæmis ef spurningar vakna um eitthvert það málefni sem þar eru á dagskrá.

Svæðisstjóri sem tengiliður.
Svæðisstjóri á sæti í umdæmisstjórn sem fulltrúi síns svæðis og er þannig tengiliður milli klúbba svæðisins og umdæmisstjórnarfunda og kemur óskum klúbba á framfæri þar. Svæðisstjóri er stöðugt tengiliður milli umdæmisstjóra og klúbba svæðisins og auk þess milli klúbba og umdæmisstjórnarfulltrúa. Í því sambandi þarf svæðisstjóri að hafa yfirsýn yfir stöðu allra klúbba svæðisins á hverjum tíma og koma með tillögur um úrbætur ef þurfa þykir.
Svæðisstjóri er formaður ráðgjafanefndar svæðisins. Vettvangur ráðgjafanefndar er einkum þeir þrír svæðisfundir sem halda skal á starfsárinu. Geri ráðgjafanefndin einhverjar samþykktir eða tillögur (smellið hér til að sjá reglur um slíkar tillögur) er það svæðisstjóri sem er tengiliður og kemur þeim framfæri.
Svæðisstjóri er tengiliður milli klúbba innan svæðisins. Má þar nefna til dæmis hugsanleg samstarfsverkefni, sameiginlegar árshátíðir eða samfundi klúbba.

Hér að framan hefur hlutverk svæðisstjóra verið brotið niður í þrjá megin þætti. Tilgangurinn er sá að auðvelda svæðisstjórum að greina sem best til hvers er ætlast af honum.
Megintilganginn með allri fræðslu innan hreyfingarinnar er hægt að setja í eina setningu:

Styrkur Lionshreyfingarinnar felst í traustum og starfsömum klúbbum með dugandi stjórnarmönnum og félögum, sem geta leitað sér fróðleiks um öll málefni hreyfingarinnar á auðveldan hátt.

Svæðisstjóri er sá aðilinn sem beinlínis á að virka hvetjandi á stjórnir klúbba. Svæðisstjóri ýtir þeim í gang á haustin með fræðslufundunum, heldur þeim vakandi með svæðisfundum og styður þá allt starfsárið með fræðslu um málefni hreyfingarinnar.