Samkvæmt lögum alþjóðahreyfingarinnar er svæðisstjóri fulltrúi umdæmisstjóra og/eða varaumdæmisstjóra á svæðinu og lýtur þeirra stjórn.
Hann er “framkvæmdastjóri” svæðisins. Hann er formaður ráðgjafanefndar svæðisins. Aðrir í ráðgjafanefnd svæðisins eru formenn, ritarar og
gjaldkerar klúbba svæðisins.
Skyldur svæðisstjóra eru þessar helstar:
Að efla framgang og markmið alþjóðasamtaka Lionshreyfingarinnar.
Svæðisstjóri skal skilyrðislaust fylgja eftir markmiðum og áherslum alþjóðaforseta, umdæmisstjóra og hreyfingarinnar. Fylgjast vel með þróun mála í umdæminu og fjölumdæminu hvað varðar fyrrgreind markmið og áherslur og miðla þeim upplýsingum til klúbba svæðisins.
Vera formaður ráðgjafanefndar umdæmisstjórar á svæðinu og halda að minnsta kosti þrjá fundi ráðgjafanefndarinnar (svæðisfundi) á starfsárinu.
Rita fundargerðir eftir hvern fund ráðgjafanefndarinnar (svæðisfund) og senda til viðkomandi aðila innan 5 daga. (Umdæmisstjóra, vara umdæmisstjóra og klúbbformanna)
Hafa vakandi auga fyrir möguleikum á stofnun nýrra klúbba um leið og hann fylgist náið með starfi og velferð klúbbanna á svæðinu.
Vera fulltrúi fyrir hvern þann klúbb á svæðinu sem á við erfiðleika að etja gagnvart umdæminu, fjölumdæminu og/eða alþjóðaskrifstofunni.
Sjá til þess að sérhver klúbbur svæðisins starfi samkvæmt lögum og reglum Lionshreyfingarinnar.
Sjá til þess að minnsta kosti allir þeir embættismenn klúbbanna sem eiga að mæta á þingum umdæmis og fjölumdæmis geri það skilyrðislaust.
Mæta á fundi hjá öllum klúbbum á svæðinu að minnsta kosti einu sinni á starfsárinu. Skýrslu um heimsókn sína skal hann senda umdæmisstjóra og varaumdæmisstjóra. Sérstaklega skal geta um veikleikamerki verði þess vart hjá klúbbum.
Að gera tillögur að aðstoð við veika klúbba og framfylgja þeim tillögum.
Svæðisstjóri hefur skyldumætingu á þeim fundum umdæmisins sem umdæmisstjóri boðar hann til.
Mæta á öðrum fundum sem eru afleiðing af samþykktum svæðisfundar vegna einhverskonar samstarfs klúbba svæðisins, eða eru til komnir vegna óska umdæmisstjóra.
Svæðisstjóri er stöðugt til reiðu fyrir klúbbstjórnir hvað varðar fræðslu, ráðgjöf, eða
tengingu við umdæmið.
|