Aðalsíða

Tillögur svæðisfunda


Rétt er að geta þess að svæðisfundir sem slíkir hafa ekki tillögurétt á þingum hreyfingarinnar.

Allar tillögur eða ályktanir sem upp eru bornar á þingum hreyfingarinnar skulu bornar upp í nafni eins eða fleiri Lionsklúbba utan þess að fjölumdæmisstjórn getur borið upp tillögur.

Komi til þess að svæðisfundir óski eftir að koma tillögum eða ályktunum fyrir þing er því nauðsynlegt að klúbbar svæðisins geri það sameiginlega eða að einn klúbbanna geri það í sínu nafni.