Markmið og siðareglur

"Markmið Lionsklúbba"
"Siðareglur Lionsmanna"



Markmið Lionsklúbba
  1. Að vekja og efla anda skilnings meðal þjóða heims.
  2. Að efla meginreglur heilbrigðs stjórnarfars og borgaralegra dyggða.
  3. Að starfa af áhuga að aukinni velferð byggðarlagsins og á sviði félagsmála, menningar og almenns siðgæðis.
  4. Að tengja klúbbana böndum vináttu, góðs félagsanda og gagnkvæms skilnings.
  5. Að skapa vettvang fyrir frjálsar umræður um öll málefni, sem almenning varðar, að því undanskildu að ekki séu rædd meðal klúbbfélaga málefni stjórnmálaflokka né heldur sértrúarhópa.
  6. Að hvetja félagslynda menn og konur til að þjóna byggðalagi sínu án persónulegs ávinnings og hvetja til dugnaðar og eflingar siðgæðis í viðskiptum, iðnaði, opinberri starfssemi og einkarekstri.
Siðareglur Lionsmanna
  1. Að líta á starf mitt sem köllun og leysta það svo af hendi að ég ávinni mér traust.
  2. Að leitast við að ná góðum árangri í starfi mínu og áskila mér hæfilega umbun erfiðis míns, en reynda ekki að hagnast með óréttmætum hætti.
  3. Að muna að láta ávinning minn ekki verða á annarra kostnað; að vera trúr meðbræðrum mínum og heiðarlegur gagnvart sjálfum mér.
  4.  Leiki vafi á lagalegu eða siðferðilegu réttmæti gerða minna, að breyta þá við náungan eins og ég vil að hann breyti við mig.
  5. Að gera  vináttu að markmiði, ekki leið að marki. Sönn vinátta krefst einskis í eigin þágu og má aldrei vera háð gagnkvæmum greiða.
  6. Að hafa ætíð í huga skyldur mínar sem þjóðfélagsþegn og að vera hollur þegn þjóðar og byggðarlags bæði í orði og verki.
  7. Að hjálpa  meðbræðrum mínum í vanda. Þeir sem um sárt eiga að binda þurfa hluttekningu, bágstaddir og minnimáttar stuðning.
  8. Að vera gætinn í gagnrýni og örlátur á hrós.  Að byggja upp, en rífa ekki niður.