"Hvernig gerist ég félagi" |
![]() Inntaka nýrra félaga |
![]() Inntaka nýrra félaga |
![]() Inntaka nýrra félaga |
|
Lionsclubs International er stærsta alþjóðlega þjónustuhreyfing heimsins. Hreyfingin starfar nú í um það bil 200 þjóðlöndum
og innan hennar eru 45.000 klúbbar með tæplega eina og hálfa milljón félaga. Lionsklúbbar eru ýmist karlaklúbbar,
kvennaklúbbar eða blandaðir klúbbar. Í samræmi við kjörorð Lionsmanna “Við Þjónum” er það eðli Lionsklúbba að vera þjónustuklúbbar, þjóna þeim sem minna mega sín. Það er þó ekki það eina sem starfið gengur út á. Mikil áhersla er lögð á að efla félagsandann og í boði eru ýmiss námskeið til að efla félagana bæði á sviði félagsstarfa og stjórnunar. Á fundum klúbbanna eru rædd málefni hreyfingarinnar og klúbbsins og einnig koma á fundina fyrirlesarar um ýmis áhugaverð málefni alls óskyld Lionshreyfingunni. Í Lionsklúbbi Mosfellsbæjar hefur verið lögð áhersla á virka þátttöku félaganna í starfinu. Einnig hefur verið lögð aukin áhersla á þátttöku fjölskyldunnar. Þetta eru auðvitað aðeins takmarkaðar upplýsingar um starf klúbbsins og ef þú hefur áhuga á að vita meira um Lionshreyfinguna eða Lionsklúbb Mosfellsbæjar getur þú haft samband við einhvern neðantalinna stjórnarmanna með tölvupósti eða símtali, eða einhvern annan félaga klúbbsins.
Við tökum vel á móti öllum sem hafa áhuga á að kynnast starfseminni. |