Úrdráttur úr sögu klúbbsins
Lionsklúbbur Mosfellsbæjar
"Söguágrip"

Höskuldur
félagi númer 1

Jón
fyrsti formaður

Sigsteinn
elsti félagi í heimi


Upphafið
Í 25 ára afmælisriti Lionsklúbbs Mosfellsbæjar er eftirfarandi haft eftir séra Bjarna heitnum Sigurðssyni presti á Mosfelli:
"Enn er mér í fersku minni þegar Einvarður Hallvarsson fór hér um byggðir veturinn 1964 - 1965. Sennilega höfðum við ekki brotið mjög heilann um starfsemi Lionshreyfingarinnar en af máli þessa áhugasama forystumanns þóttust menn heyra að hér færi hann með erindi sem rétt væri að gefa gaum".
Það munu svo hafa verið vinirnir Guðmundur Guðmundarson og Þorvaldur Þorsteinsson félagar í Lkl. Ægi sem færðu hugmyndina í tal við Odd heitinn Ólafsson þáverandi yfirlækni á Reykjalundi. Upp úr því var haft samband við allmarga menn í sveitinni og boðað til fundar á heimili þeirra Odds og Ragnheiðar Jóhannesdóttur. Óhætt er að segja að orðum Einvarðs Hallvarðssonar hafi verið gefinn gaumur á þeim fundi því stuttu seinna eða nánar tiltekið 18. mars 1965 var stofnfundur Lionsklúbbs Kjalarnesþings haldinn. Stofnfélagar voru 21. Móðurklúbburinn var Lkl. Ægir í Reykjavík.
Við klúbbfélagarnir erum þeim Ægisfélögum ævarandi þakklátir fyrir þetta framtak þeirra sem varð til þess að bæta mannlífið hér í Mosfellsbæ og gera góðan bæ betri. Við félagarnir getum með stolti haldið því fram að við höfum unnið bænum mikið gagn á þessum árum.
Á stofnfundinn mættu nokkrir frammámenn hreyfingarinnar þar á meðal Þorvaldur Þorsteinsson fyrrverandi alþjóðastjórnarmaður, Guðmundur Guðmundarson fyrrverandi umdæmisgjaldkeri, og þeir Guðbrandur Magnússon, Einvarður Hallvarsson og Eyjólfur K. Sigurjónsson fyrrverandi umdæmisstjórar.
Klúbbnum var kosin stjórn en hana skipuðu þeir Jón M. Sigurðsson formaður, Tómas Sturlaugsson ritari og Guðmundur Magnússon gjaldkeri.
Það var svo á 10. þingi Lionsumdæmis 109 sem fram fór á Hótel Valhöll á Þingvöllum 1. maí 1965 að klúbburinn hélt sína stofnskrárhátíð. Á því þingi héldu einnig sína stofnskrárhátíð Lkl. Grindavíkur og Lkl. Sandgerðis.
Eins og fyrr segir hlaut klúbburinn nafnið Lionsklúbbur Kjalarnesþings. Síðar meir var mikið rætt um nafn klúbbsins og voru ýmsar tillögur á lofti. Veturinn 1971 - 1972 var meira að segja atkvæðagreiðsla um nafnatillögur og hlaut nafnið Skeggi flest atkvæði. Ekki varð þó úr nafnabreytingu því samfara. Það er ekki fyrr en veturinn 1988 - 1989 að ákveðið var að breyta nafni klúbbsins og þótti þá eðlilegt að nefna hann eftir heimabyggðinni. Fyrir lok þess starfsárs var nafnið Lionsklúbbur Mosfellsbæjar samþykkt af alþjóðastjórn og ber klúbburinn það nafn síðan.

Fjáraflanir
Strax í upphafi varð blómasala á konudaginn og um páskana aðalfjáröflunarleið klúbbsins. Blómin voru í fyrstu keypt í heildsölu af ylræktarbónda en fljótlega hófu klúbbfélagar innflutning laukanna, niðursetningu þeirra og ræktun sjálfir. Á tímabili voru umsvifin það mikil að félagarnir seldu öðrum Lionsklúbbum vítt og breytt um landið blóm í heilsölu. Allt tekur þó breytingum og í apríl 1997 var ákveðið að hætta þessari fjáröflunarleið enda var þá búið að setja á stofn blómabúð í bæjarfélaginu og gróðurhúsið orðið lélegt.
Fleiri fjáröflunarleiðir hafa verið stundaðar. Á bernskudögum klúbbsins voru seldar ljósaperur, sælgæti, harðfiskur, hreinsað meðfram vesturlandsveginum og fleira. Lengi höfum við selt sælgætisjóladagatöl sem flutt eru inn af Lkl. Frey í Reykjavík og margt fleira mætti nefna. Á nokkurra ára tímabili náðist samstarf við Sambíóin þar sem klúbburinn fékk forsýningarrétt á einni kvikmynd á ári. Öll innkoma af miðasölunni hefur runnið óskipt til líknarmála. Segja má að það sé dálítið sérstakt að fara í bíó og hitta þar fyrir 400 Mosfellinga.
Síðustu árin hefur klúbburinn aðallega aflað fjár með því að halda veglegt herrakvöld í Hlégarði þar sem boðið er uppá stórglæsilegt fiskiréttarhlaðborð.  Herrakvöldið er orðið fastur liður í starfsemi klúbbsins, haldið um miðjan febrúar ár hvert.  Auk fiskiréttarveislunnar sem Vignir Kristjánsson veitingamaður á staðnum og félagi í Lionsklúbbnum töfrar fram, er á herrakvöldinu boðið uppá margvísleg skemmtiatriði.  Ýmsir valinkunnir ræðumenn hafa farið ákostum og slegið á létta strengi og söngurinn hefur ómað af vörum veislugesta.  Happdrætti með mörgum eigulegum vinningum er einnig fastur liður á þessari kvöldskemmtun og hefur gefið klúbbnum góðar tekjur til líknarmála.
Vorið 2005 gerðist klúbburinn undirverktaki við girðingarvinnu á Reykjanesi og lögðu klúbbfélagar fram fjölda vinnustunda við það verkefni.
Að síðustu ber að nefna vinnuframlag klúbbfélaga við kirkjugarðana að Lágafelli og Mosfelli.  Þar hefur klúbburinn tekið að sér margvísleg fegrunar- og ræktunarverkefni, girðingarvinnu, þökulagningu og fleira og fengið greitt fyrir.

Verkefnin
Rétt er að byrja á að segja frá því sem við köllum stóra verkefnið okkar. Það er líklega stærsta verkefni sem nokkur klúbbur hér á landi og þó víðar væri leitað hefur ráðist í og lokið. Reyndar hafa fleiri en einn af þeim alþjóðaforsetum hreyfingarinnar sem skoðaði verkefnið sagt að þetta væri stærsta verkefni sem nokkur Lionsklúbbur í heiminum hefði klárað á eigin spýtur. Um er að ræða byggingu Dvalarheimilis aldraðra í Mosfellsbæ, fyrsta áfanga.
Peningasöfnunin til verkefnisins hófst upp úr 1970 og fyrsta skóflustungan var tekin 26. nóvember 1976. Þá var Arnaldur heitinn Þór formaður klúbbsins og framkvæmdirnar hvíldu mest á herðum þeirra formanna sem sátu meðan verkefnið stóð yfir. Má þar nefna Ásbjörn heitinn Sigurjónsson (Ásbjörn á Álafossi), Jón M. Guðmundsson (Jón á Reykjum) og Gunnlaug Briem ásamt meðstjórnarmönnum þeirra. Skipuð var sérstök framkvæmdanefnd undir forystu Sæbergs Þórðarsonar. Framlög til byggingarinnar voru frádráttarbær frá skatti og auðveldaði það mjög fjáröflunina bæði meðal einstaklinga og fyrirtækja.  Stofnað var til sérstaks happdrættis til að afla fjár til byggingarinnar.  Bygging hússins reyndi mjög á þolrif félaganna og þær voru ófáar vinnustundirnar sem fóru í byggingarvinnu. Verkinu tókst að ljúka farsællega og þann 12. júlí 1980 var húsið afhent Mosfellsbæ fullbúið. Í húsinu eru 2 hjónaíbúðir og 4 einstaklingsíbúðir ásamt samveruherbergi geymslum og fleiru.  Við aðalinngang hangir skjöldur sem greinir frá framtaki klúbbsins.  Árið eftir unnu klúbbfélagar svo við standsetningu lóðarinnar umhverfis húsið.
Annað stórt afrek klúbbsins er þátttaka í alþjóðlegu sjónverndarátaki Lionshreyfingarinnar Campaign SightFirst II starfsárin 2005 - 2008.  Klúbburinn var þá með langhæsta framlag Lionsklúbba á Íslandi, hæsta framlag nokkur klúbbs á Norðurlöndunum og í öðru sæti í Evrópu.  Framlag klúbbsins nam 23% af heildarframlagi allra klúbba umdæmi 109 - B og 10% af heildarframlagi allra Lionsklúbba á Íslandi.  Fyrir framlag klúbbsins til þessa stærsta verkefnis sem Lionshreyfingin hefur staðið fyrir má bjarga allt að 8.800 einstaklingum frá blindu.
Af öðrum verkefnum má nefna verðlaunagripi vegna sundmóts 17. júní í mörg ár, styrki til vel flestra deilda Ungmennafélagsins Aftureldingar, Skálatúnsheimilið, Björgunarsveitina Kyndil, Skólalúðrasveit Mosfellsbæjar, hreinsun og fegrun umhverfisins í Mosfellsbæ, trjárækt, sölu Rauðrar fjaðrar, vímuvarnir, Lions Quest, þorrablót aldraðra og alþjóðahjálparsjóð Lionshreyfingarinnar. Ekki má heldur gleyma Endurhæfingarstofnuninni að Reykjalundi sem ávallt hefur skipað sérstakan sess í hugum klúbbfélaga. Of langt mál væri að telja upp öll þau verkefni sem klúbburinn hefur sinnt gegnum árin og látum við hér staðar numið.

Þinghald
Árið 1969 tók klúbburinn að sér með mjög stuttum fyrirvara að halda umdæmisþing. Þingið fór fram í Hlégarði og þótti mörgum sem hinum unga klúbbi tækist vel upp. 1992 stóð klúbburinn svo fyrir fjölumdæmisþingi sem fór að mestu fram í skólunum og í íþróttarhúsinu. Undirbúningur þingsins undir stjórn þáverandi formanns Björns Ástmundssonar var mikið verk en skemmtilegt og þjappaði félögunum vel saman og styrkti félagsandann.  Sú jákvæða reynsla varð til þess að klúbburinn hélt fjölumdæmisþing enn á ný árið 2000 og nú hefur verið lögð inn umsókn um að halda þingið árið 2010 hér í Mosfellsbæ.  Skylt er að geta þess að bæjaryfirvöld hafa stutt klúbbinn dyggilega við þessi verkefni með útvegun á aðstöðu í skólum og íþróttahúsum.

Dótturklúbbar
Klúbburinn hefur nú getið af sér 3 afkvæmi.
Lionsklúbburinn Búi var stofnaður 5. október 1972 og voru stofnfélagar 20. Búafélagar hafa staðið fyrir ýmsum verkefnum bæði á Kjalarnesi og í Kjós. Á tímabili fækkaði þeim Búafélögum talsvert og lá starfið að mestu niðri í 3 ár. Með aðstoð nokkurra félaga úr Lkl. Mosfellsbæjar var klúbburinn endurvakinn og starfaði með miklum sóma í 5 ár eftir það eða þar til hann var lagður niður.
Lionsklúbburinn Fjörgyn í Reykjavík var stofnaður 14. maí 1990 og voru stofnfélagar 25. Klúbburinn er sá fyrsti sem stofnaður er sem sérstakur hverfaklúbbur í Reykjavík. Reyndar voru stofnaðir 2 hverfaklúbbar á þessum tíma og báðir í Grafarvogi. Þeir félagar í Fjörgyn hafa beint kröftum sínum að kirkjubyggingu og íþróttarfélaginu í Grafarvogi. Þá hefur Barnadeild Landspítalans notið krafta þeirra í ríku mæli.  Í byrjun starfsársins 2007 - 2008 stóð Lkl. Mosfellsbæjar fyrir könnun á því hvort áhugi væri á því að stofna hér kvennaklúbb.  Þessar þreifingar leiddu til þess að ákveðið var að stofna slíkan klúbb.  Stofnfundur klúbbsins var haldinn 10. desember og á veglegri stofnskrárhátíð þann 29. ferbúar gekk glæsilegur hópur 35 kvenna formlega til liðs við Lionshreyfinguna.  Klúbburinn fékk nafnið Lionsklúbburinn Úa Mosfellsbæ.

Félagsstarfið
Það er fleira en fjáraflanir og styrkveitingar sem fylgir því að vera félagi í Lionsklúbbi Mosfellsbæjar. Samveran á klúbbfundunum er félögunum mikilvæg og fundirnir oftast léttir og skemmtilegir. Vinnan við blómaræktunina forðum daga gaf okkur félögunum margar góðar stundir.  Einnig eigum við margar góðar minningar frá samverustundum við önnur verkefni.
Golfmótið "Jóel Exclusive" sem haldið var árlega inn á milli gróðurhúsanna hans Jóels þar sem bæði reyndir og óreyndir golfarar klúbbsins reyna með sér er eitt dæmið um góðan anda í klúbbnum. Þótt ótrúlegt megi virðast hefur aðeins einu sinni brotnað rúða í gróðurhúsunum af völdum golfara. Einn félagi átti reyndar óvenju gott teighögg eitt sinn og afleiðingin varð sú að boltinn small í hliðarrúðu Broncojeppa Jóels og braut hana.
Golfmótið er nú haldið í tenglum við árlega útilegu félaganna í ágúst. Í einni slíkri útilegu 2007 var tekin upp sú nýlunda að eiginkonur klúbbfélaganna halda sitt eigið golfmót. Þótti það takast svo vel að það er komið til að vera.
Að öllu jöfnu eru haldin nokkur makakvöld á hverju starfsári, fjölskyldu jólahlaðborð, morgunverðarhlaðborð á sumardaginn fyrsta, farið út í bláinn, farið í útreiðatúr á vorin og í haustferðir.  Um miðjan ágúst er farið í fyrrnefnda útilegu eina helgi. 
Klúbburinn hefur tvisvar sinnum staðið fyrir utanlandsferðum fyrir félaga og maka.  Vorið 1979 var farið til Parísar og vorið 2008 var farið til Barcelona.  Báðar þessar ferðir tókust frábærlega vel.
Á þennan hátt er leitast við að gera starfið þannig að félagarnir hafi gaman að því.
Með framlagi í Alþjóðahjálparsjóð Lionshreyfingarinnar, LCIF, hafa 26 klúbbfélagar verið gerðir að "Melvin Jones" félögum en það er æðsta viðurkenning innan Lionshreyfingarinnar sem aðrir en alþjóðaforseti geta veitt.  Á stjórnarskiptafundi klúbbsins 23. maí 2008 varð Magnús Sigsteinsson fyrsti félagi klúbbsins til að fá slíka viðurkenningu frá klúbbnum í annað sinn.
Á morgunverðarfundi klúbbsins á sumardaginn fyrsta 2008 gerði klúbburinn Birgi D. Sveinsson fyrrverandi skólastjóra og stofnanda og stjórnanda Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar að Melvin Jones fyrir hans frábæru störf í bæjarfélaginu.  Birgir er sá fyrsti utan klúbbsins sem klúbburinn hefur veitt þá viðurkenningu.
Nokkrir félagar klúbbsins hafa gengt mikilsverðum trúnaðarembættum innan hreyfingarinnar. Þar ber hæðst að Guðmundur heitinn Jóhannesson var umdæmisstjóri 1982 - 1983 og Jón Bjarni Þorsteinsson var umdæmisstjóri 1989 - 1990 og fjölumdæmisstjóri 1990 - 1991. Jón Bjarni var svo fjórði íslenski Lionsfélaginn sem kjörinn hefur verið til setu í alþjóðastjórn Lionshreyfingarinnar en þar sat hann starfsárin 1999 - 2001.
Auk þess hafa nokkrir aðrir félagar klúbbsins átt sæti bæði í umdæmisstjórnum og fjölumdæmisráði um mislangan tíma.
Kristinn Hannesson var unglingaskiptastjóri Lionshreyfingarinnar á Íslandi 1990 - 2005 og mun það vera einsdæmi í heiminum að sami Lionsfélaginn gengi sama embætti svo lengi.  Kristinn var svo verkefnisstjóri á Íslandi fyrir alþjóðlegt sjónverndarátak Lionshreyfingarinnar Campaign SightFirst II 2005 - 2008 og hefur gegnt fjölmörgum öðrum trúnaðarstörfum fyrir hreyfinguna.
Ekki verður þó skilið við félagsstarfið án þess að minnast á þátt eiginkvenna félaganna. Þær hafa gengum árin stutt félagana með ráðum og dáð og aldrei látið sitt eftir liggja. Má til dæmis nefna ómetanlegt framlag þeirra í tengslum við þinghald klúbbsins bæði 1992 og 2000.

Staðan nú
Félagar klúbbsins nú eru 41 og þar af eru enn starfandi 2 stofnfélagar. Þeir eru Sigsteinn Pálsson og Jón M. Guðmundsson.  Félagar klúbbsins eru stoltir af því að elsti Lionsfélagi í heimi er í Lkl. Mosfellsbæjar.  Stofnfélaginn Sigsteinn Pálsson er fæddur 12. febrúar 1905 og mætir enn á fundi öðru hvoru.
Klúbburinn er nú í umdæmi 109B og tilheyrir þar svæði 2 ásamt Lkl. Akraness, Lkl. Borgarness, Lkl. Eðnu Akranesi, Lkl. Fjörgyn Reykjavík, Lkl. Fold Reykjavík, Lkl. Úu Mosfellsbæ og Lkl. Öglu Borgarnesi. Samstarfið milli þessara klúbba verið mjög ánægjulegt.
Það að vera Lionsfélagi gefur lífinu vissulega gildi. Máltækið "sælla er að gefa en þiggja" á hér vel við því það er staðareynd að ef þú réttir öðrum hjálparhönd og finnur að þú hafir gert gagn, þá ertu jafnframt að gera eitthvað fyrir sjálfan þig.

Reglulegir fundir klúbbsins eru haldnir annan og fjórða fimmtudag hvers mánaðar og eru að öllu jöfnu kvöldfundir (kl. 19.00). Á sumardaginn fyrsta er morgunverðarfundur með fjölskyldum klúbbfélaga fastur liður.
Fundarstaður klúbbsins er Félagheimilið Hlégarður í Mosfellsbæ.



Upplýsingar þessar tóku saman Magnús Sigsteinsson og Kristinn Hannesson.
Stuðst var við 25 ára afmælisrit klúbbsins og upprifjun sem Magnús flutti á 30 ára afmælishátíðinni. Einnig var leitað í gamlar ársskýrslur klúbbsins.