|
| ![]() Mynd frá Mosfellsbæ ![]() Lágafellskirkja ![]() Reykjalundur |
Mosfellsbær er útvörður höfuðborgarsvæðisins í norðri. Þar
hefur byggð vaxið ört á síðustu árum og myndast góð blanda borgarsamfélags og
sveitar þar sem íbúarnir kjósa kosti þéttbýlis en nýta um leið það sem óspillt
náttúran hefur upp á að bjóða.Bæjarstæðið markast af Úlfarsá og Leirvogsá en um byggðina hríslast Kaldakvísl og Varmá. Mosfellsbær er gjarnan nefndur græni bærinn því þar er gróðurfar með afbrigðum gott í skjóli Mosfells, Helgafells, Reykjafells og Úlfarsfells. Íbúafjöldi Mosfellsbæjar hefur fimmfaldast frá árinu 1971 en þar búa nú rúmlega 8.300 manns. Bærinn hlaut kaupstaðarréttindi árið 1987. Menningin blómstrar Að Álafossi við Varmá var reist ullarverksmiðja árið 1896 og þar stóð iðnaður í blóma um langt árabil. Í dag hafa fjölmargir listamenn hreiðrað um sig í Álafosskvosinni og hús þar fengið nýtt hlutverk. Og inn í Mosfellsdal bjó að Gljúfrasteini Nóbelsskáldið Halldór heitinn Laxnes, heiðursborgari Mosfellsbæjar. Tvær kirkjur eru í Mosfellsbæ; að Mosfelli þar sem Egill Skallagrímsson bar beinin og að Lágafelli þar sem athafnamaðurinn Thor Jensen bjó síðustu æviárin. Heitt vatn og rósir Snemma var farið að huga að nýtingu jarðvarmans og lætur nærri að 2/3 hluti af heita vatni höfuðborgarsvæðisins eigi upptök sín í Mosfellsbæ. Ylrækt er stunduð af kappi í dalnum og rósir bændanna þar löngu landsfrægar. Að Reykjalundi hefur verið lögð líkn við þraut um áratugaskeið en þar er m.a. endurhæfingarheimili og öflugur plastiðnaður. Útivist og íþróttir Mosfellsbær er ungur bær og mikil áhersla hefur verið lögð á uppbyggingu útivistar- og íþróttamannvirkja. Þar er m.a. að finna glæsilega sundlaug, tvo golfvelli, hestaleigur, siglingaaðstöðu og íþróttamiðstöðina að Varmá. Og ekki má gleyma laxveiðinni í Leirvogsá. Um allt bæjarlandið liggja göngu- og reiðstígar enda stutt til athyglisverðra staða á borð við Tröllafoss, Álafosskvos, Varmárósa að ógleymdum fjöllum þeim er umlykja bæinn þaðan sem úsýni er vítt og fagurt. Þjónusta í fyrirrúmi. Mosfellsbær vill taka vel á móti gestum og gangandi enda í alfaraleið. Í bænum er að finna almenna þjónustu á borð við verslanir, pósthús, bókasafn, banka, heilsugæslu og apótek. Þaðan eru greiðar almenningssamgöngur og tjaldstæðið við Brúarland bíður eftir ferðalanginum - hvaðan sem hann kemur og hvert sem hann fer. Smellið hér til að tengjast heimasíðu Mosfellsbæjar. Upplýsingar þessar eru fengnar með leyfi bæjarritara úr bæklingi útgefnum 1996 af atvinnumálanefnd Mosfellsbæjar. |