Aðalsíða
Lionsklúbburinn Úa Mosfellsbæ
"Aðalsíða"


Á heimasíðu Lionsklúbbs Úu Mosfellsbæ mun verða hægt að finna allar helstu upplýsingar um klúbbinn og ýmislegt fleira. Heimasíðan er í vinnslu en stefnt er að því að hafa:
Stutt ágrip af sögu klúbbsins, stjórn og nefndir, félagatal, lista yfir alla félaga frá stofnun klúbbsins, ljósmyndir, dagskrá starfsársins, fundargerðir, fróðleik um Lionshreyfinguna, markmið Lionsklúbba og siðareglur Lionsmanna, tengla á aðrar fróðlegar síður, fróðleik um heimabyggð okkar Mosfellsbæ, og ýmislegt fleira.
Síður þessar eru unnar til að efla vitneskju almennings um Lionsklúbbinn Úu Mosfellsbæ og um Lionshreyfinguna.

Þeim sem hafa áhuga á að kynnast starfsemi klúbbsins er bent a að hafa samband við einhverja af stjórnarmönnum klúbbsins með tölvupósti eða símtali, eða einhvern annan klúbbfélaga.

Fundir klúbbsins eru haldnir í Hlégarði, 1. mánudag hvers mánaðar kl. 19.00
Þriðja mánudag eru óformlegir fundir.

Vinkvennakvöldið sem haldið var 11. nóvember 2011 tókst einstaklega vel.
Góðar veitingar í Hlégarði að hætti Vignis.
Þökkum öllum þeim sem tóku þátt í þessu kvöldi með okkur.
Allur ágóði rennur til góðgerðamála.

Næsta Vinkvennakvöld verður 9. nóvember 2012



Næst á dagskrá,
20. febrúar, útivist
Eitthvað skemmtilegt á prjónunum
 



Sjá nánar í dagskrá

Umsjónarmaður heimasíðunnar er: Dagný S. Finnsdóttir
Upplýsingar á síðum klúbbsins voru síðast uppfærðar 6. febrúar 2012