Lkl. Úa Mosfellsbæ

Lionsklúbburinn Úa Mosfellsbæ
"Hvernig gerist ég félagi"



Lionsclubs International er stærsta alþjóðlega þjónustuhreyfing heimsins. Hreyfingin starfar nú í um það bil 200 þjóðlöndum og innan hennar eru 45.000 klúbbar með tæplega eina og hálfa milljón félaga. Lionsklúbbar eru ýmist karlaklúbbar, kvennaklúbbar eða blandaðir klúbbar.

  • Í Lionshreyfingunni starfa karlar og konur saman að góðum málefnum.
  • Í Lionshreyfingunni starfa ungir og aldnir saman að góðum málefnum.
  • Í Lionshreyfingunni geta allir fundið sér farveg við hæfi.

    Í samræmi við kjörorð Lionsmanna “Við Þjónum” er það eðli Lionsklúbba að vera þjónustuklúbbar, þjóna þeim sem minna mega sín. Það er þó ekki það eina sem starfið gengur út á. Mikil áhersla er lögð á að efla félagsandann og í boði eru ýmiss námskeið til að efla félagana bæði á sviði félagsstarfa og stjórnunar. Á fundum klúbbanna eru rædd málefni hreyfingarinnar og klúbbsins og einnig koma á fundina fyrirlesarar um ýmis áhugaverð málefni alls óskyld Lionshreyfingunni.

    Í Lionsklúbbnum Úu Mosfellsbæ hefur verið lögð áhersla á að byggja upp innra starf klúbbsins. Virkja þátttöku félaganna í starfinu með því að allar nefndir fái hlutverk á starfsárinu.
  • Fundir eru fyrsta mánudag hvers mánaðar.
  • Óformlegir fundir þriðja hvern mánudag í formi útigöngu og eða heimsókna.
  • Vinkonukvöld
  • Jólafund
  • Páskafund
  • Óvissuferð út í vorið.

    Þetta eru auðvitað aðeins takmarkaðar upplýsingar um starf klúbbsins og ef þú hefur áhuga á að vita meira um  Lionsklúbbinn Úu Mosfellsbæ getur þú haft samband við einhvern neðantalinna stjórnarmanna með tölvupósti eða símtali, eða einhvern annan félaga klúbbsins.


    Við tökum vel á móti öllum sem hafa áhuga á að kynnast starfseminni.