Hin ævaforna menning enduruppgötvuð.

 

Dagarnir bera nöfn reikistjarnanna, þeirra sem sjást frá jörðu, og þetta eru nöfn guðanna okkar fornu líka. Samsvarandi nöfn eru á sanskrít og Evrópumálum   --   nema þar sem búið er að eyðileggja daganöfnin.

 

    Gyðjan Sól (sæla, uppljómun; surya),

    Máni (hugur; luna, cchandra),

    Týr (réttlæti, lög og tærleiki; Marz, mangal),

    Óðinn (vitund; budha, Merkúr),

    Þór (kraftur, þekking; Júpíter, guru),

    Freyja (ást, sköpun; Venus, shukra),

    Loki (Satúrnus; shani). 

 

Daganöfn = guðanöfn = reikistjörnur. Gott og vel. Þetta hefur kannski runnið upp fyrir mörgum.  

En:

sama sem hlutar mannsheilans!! Vitið þið þetta??  

 

Það nýjasta í læknisfræði kom út í bók eftir læknninn Raja Raam, Tony Nader, MD PhD, Beirút, Lebanon, konung Global Country of World Peace, um, að í mannsheilanum er samsvörun við reikistjörnurnar: 

    Þalamus (Sól, surya),

    hypoþalamus (Máni, cchandra),

    amygdala (Týr, mangal),

    subþalamus (Óðinn, budha),

    globus pallidus (Þór, guru),

    substansia nigra (Freyja, shukra).

    putamen (Loki, shani).

Og í heila okkar eru líka ketu og rahu, haus og hali á goðsagnaveru, nucleus caudatus.

 

Þessir hlutar heilans hafa sömu starfsemi að gegna og samsvarandi guð tákna í goðsögnum! 

 

(Human Physiology and our Cosmic Counterparts:)

Margt er skrítið í kýrhausnum, og margt sem við skiljum ekki í mannlíkamanum. Við eigum mikið ólært og margt eftir að skilja betur.

Við erum órjúfanlegur hluti af heild, og mannslíkaminn á sér samsvörun í alheiminum.

 

Lögmál náttúrunnar stjórna alheiminum snurðulaust, og við skulum lifa í Þundarflæði með þeim.  Að stríða gegn náttúrulögmálunum kann ekki góðri lukku að stýra. Grem eigi goð að þér. Lifum í sátt við goðin.

 

Sólkerfið okkar er sá hluti náttúrulögmálanna sem við erum tengdust og hefur mest áhrif á okkur, og í okkur býr alheimurinn. Mannleg vitund og alheimsvitund, svinnur, er eitt og hið sama. Þar, innan okkar, er hina óendanlega gleiðu og víðu Glaðheima vitundar að finna.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Guðrún Kristín Magnúsdóttir, rithöfundur og myndlistamaður