Höfuðskepnurnar fimm

 

Í febrúar 04 kom út grein í vísindariti um að quinto essence væri fundið.  Ekki kannski nein ný uppfinning því þetta hefur staðið í Vedunum í þúsundir ára.  Vestrænir vísindamenn voru bara að finna það núna. 

Akash, eða kham, heitir það á sanskrít, er raunar fyrsta höfuðskepnan en ekki sú fimmta, og fyllir ¾ (þrjá fjórðu) hluta af hinni sköpuðu veröld.  Hinar höfuðskepnurnar eru svo --  í þessari röð hver af annari komin   --   loft,
   eldur,
   vatn,
   jörð. 

Samsvarandi höfuðskepnunum 5 eru svo skilningarvitin okkar 5: 
  samsavarandi akash, rúminu, er heyrn,
  lofti tilfinningin,
  eldi eða ljósi sjónin,
  bragðskyninu vatn,
  ilman (lyktarskyni) jörð. 

Hver veit nema rúmið sé Heimdallur sem heyrir grasið gróa og ullina vaxa?
Kannski er loftið Hræsvelgur, en loft er alltaf að flýta sér, a.m.k, hér á Íslandi (rok).

Skepna er það sem skapað er, og allur hinn skapaði alheimur er úr þessum höfuðskepnum, og hin skapaða veröld er það sem við nemum með okkar veraldlegu skilningarvitum. 

En innan alls er ginnungagap (svo notað sé málfar forfeðranna), gapið mikla ginnhelga sem ekkert skilningarvitanna fær numið.  Það er eiginleikalaust, er möguleikar alls, er svinnur hlaðinn orku, vitund á hreyfingu. Allur hinn skapaði heimur eru úr því kominn, og við erum í raun það, raunveran, grundvallarraunveruleikinn (svo notuð séu hugtök heimspekinnar).

Þetta svið er samsvið allra náttúrulögmálanna (svo notað sé málfar vísindanna)

-Og hvað segir þetta okkur? 
-jú, að við þurfum ekki að sogast inní veraldardansinn mikla nema bara okkur og öðrum til gleði og gagns.
Þótt kroppurinn okkar sé úr veraldlegu efni, getum „hin eiginlegu við“ horft á veröldina sem þögul vitni að fegurð náttúrunnar og gert lífið yndislegra.

 

 

 

 

 

Guðrún Kristín Magnúsdóttir, rithöfundur og myndlistamaður