Ljósahátíð og vetrarkomugleði í stað hermdarverka
Ef börn eða ungmenni grímuklæðast og ræna sjoppu, varðar það við lög, ekki satt?
Ef foreldrar kaupa ljóta innflutta grímubúninga, telja vera skemmtun og leiki við hæfi barna sinna að klæðast þeim í náttmyrkri í lok október, berja að dyrum hjá fólki og hóta skemmdar-/hermdarverkum sé ekki farið að kröfum þeirra, ætti slíkt að varða siðferðiskennd, finnst mér.
Við skulum ekki einu sinni eiga íslenskt orð yfir þetta athæfi.
Lágkúruleg ómenning
Svona hótanir um ofbeldi eru lágkúruleg ómenning. Hvers vegna erum við að lepja hana upp? Sumum kann að finnast hrekkir og skemmdarverk vera saklaus skemmtun, -- en ekki mér. Við erum með þessu að ala upp hryðjuverkamenn. Ég get ekki glaðst yfir hótunum um ofbeldi í ábataskyni.

Nú skulum við ,,stela” tyllideginum okkar til baka!
Í lok október -- á árshjólinu beint á móti sumardeginum fyrsta á hörpu -- er forn hátíðisdagur -- á gormánuði á undan frera/ýli. Líklega er allhallowmas afbökun af honum.
Við skulum hefja þennan forna tyllidag til vegs á ný, -- menningarlega fallegan. Við skulum smella honum á 31. október. Höldum vetrarkomugleði og ljósahátíð á þessum ævaforna fallega hátíðisdegi -- sem búið er að afskræma.
Ég skora á börn, foreldra, nágranna, brogarráð, bæjastjórnir, kennara, alla, að taka upp heilbrigða skemmtan. Að gleði sé gleði. Allir sem vettlingi geta valdið mæti til þjóðlegrar fjölskyldugleði í byrjun skammdegis á norðurslóðum.
Vetur konungur og snædrottningin
Og tökum hlýlega (klædd) á móti vetri konungi þegar hann kemur heim í norðrið úr sumarfríi sínu á suðurhveli. Vetur konungur á víst rétt á 26-vikna sumarfrí, en hann tekur það oft ekki allt. Hann er svo heimakær hér hjá okkur. Mér þykir hann líka svolítið óskipulögð vættur.
Kannski er Snædrottningin með honum á ljósagleði. Mjöllin okkar hvít er birta vetrarins. Snædrottningin skreppur aðeins á fjallatoppa og jökla í sumarfrí, og á það til að skella sér til byggða á skjön við 26 vikna orlofið.
Þemahugmyndir:
* Hvað eru norðurljósin?
* Lýsi heitir lýsi því það var ljósmeti.
* Fífu í kveik þarf að tína áður en hún skiptir sér, sagði amma.
* Stjörnuhiminn norðursins.
* Hvernig sigldu forfeður okkar?
* Hvar er Mardöll?
Gerður og Freyr
Tilvaldir eru helgileikarnir Skírnismál, sem eru um að finna hið innra ljós. (Ókeypis handrit handa börnum <freyjukettir@mmedia.is> og á www.mmedia.is/odsmal (tengill)) * Gerðargleði verði að fornum sið á eftir helgileikunum. * Stjörnuljós, blys, búningaball -- og nú heimasaumaðir og þjóðlegir búningar, því við erum virk og skapandi.

höfundur er rithöfundur og myndlistarmaður