Árið 1952 stofnuðu Egill Karlsson og Lúðvík Ingvarsson hlutafélagið Sporð.
Upphafið má þó
rekja til áranna 1947-1948 en þá hóf þáverandi sýslumaður
Suður-Múlasýslu, Lúðvík Ingvarsson, tilraunir til verkunar á harðfiski.
Þar byggði hann á eigin reynslu og annarra, að fiskur sem frystur er
við vægt frost er “sætari og bragðmeiri” en ferskur fiskur eða
hraðfrystur. Hlutafélagið
keypti gamalt sláturhús,
breytti því í frystihús, sem enn er notað til flökunar og
frystingar. Einnig var
keyptur gamall herbraggi sem var notaður við þurrkunina, bragginn er
enn í notkun. Veturinn 1951
- 1952
var allur búnaður
settur upp til frystingar og þurrkunar og rekstur hófst síðan árið
1952. Óhætt er að segja að
varan, sem gekk undir nafninu “Sætfiskur” hafi slegið í
gegn, enda heilnæm og
holl náttúruafurð sem
eingöngu er framleidd úr fersku úrvalshráefni án notkunar
aukaefna. Allt ferli vinnslunnar er handavinna og nostur sem líkja
má við framleiðsluaðferðir dýrustu vína. Vinnsluaðferð á harðfiskinum
hefur lítið breyst í áranna rás.
Fyrirtækið hefur frá upphafi verið rekið af sömu fjölskyldu
á Eskifirði. Harðfiskurinn
er seldur víða um Ísland m.a. í verslun Islandica í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar.