Eldfjallið Hekla
Við norður rísa Heklu tindar háu.
Svell er á gnípu, eldur geisar undir;
í ógna djúpi, hörðum vafin dróma,
skelfing og dauði dvelja langar stundir.
Jónas Hallgrímsson: (Gunnarshólmi)
Hekla er eitt þekktasta eldfjall í heiminum og er hennar víða getið í gömlum heimildum. Eldur í Heklu! Um aldir hefur þessi fregn vakið óhug hjá Íslendingum og út fyrir landssteinana enda var á öldum áður haldið að hún væri inngangur að helvíti. Trúðu menn að þar loguðu sálir fordæmdra í eilífum eldi. Gengu um fjallið hinar mestu furðusagnir, enda bárust frá Íslandi fréttir af hörmungum manna, dýra og náttúru í eldgosum frá þessu mikla fjalli. Mörg býli í nágrenni fjallsins hafa farið í eyði í gegn um aldirnar, farið undir hraun eða hrunið í jarðskjálftum sem eldgosum fylgdu. En þrátt fyrir þær hörmungar sem oft dundu yfir í kjölfar gosa, bera Íslendingar óttablandna virðingu fyrir Heklu og líta til hennar með lotningu og ber mörg stúlkan nafnið hennar.
Frá landnámi Íslands er talið að Hekla hafi gosið um það bil einu sinni á öld, þar til á þeirri tuttugustu en þá urðu gosin fjögur, það síðasta árið 1991. Og sú gamla byrjaði nýju öldina með stæl 4. mars 2000 hóf hún að gjósa eina ferðina enn
Það er augljóst mál að með ferð á Heklu kemst fólk í snertingu við eitt virkasta eldfjall í heiminum í dag, getur upplifað þá krafta sem í fjallinu búa og fundið hitann úr jörðinn, það er ólýsanleg upplifun!.
Sími Gistih. Brennu: 4875532
Gsm: 8611662
Netfang: brenna@mmedia.is
Veffang: www.mmedia.is/toppbrenna
Sími Toppferða: 4875530
Gsm: 8611662
Netfang: toppferd@mmedia.is
Veffang: www.mmedia.is/toppbrenna