VERUND
ÁRA MANNSINS



Appelsínu-gulur litur í árunni


but-and-tilbaka.gif - 1269 Bytes
but-and-tiladal.gif - 1288 Bytes

bgyelhnap.JPG - 7530 Bytes


 

Áru, sem hefur appelsínugulan lit ríkjandi, er helst að finna hjá miklu dugnaðarfólki. Það er venjulega félagslega úthverft, og velur sér oftast starf sem krefst mikilla samskipta, svo sem í pólitík og sölumennsku. Það er yfirleitt sjálfstætt og metnaðargjarnt, og býr nánast alltaf yfir miklum sannfæringarkrafti. Það hefur tilhneigingu til þess að vanmeta veikleika sína og fer stundum í vörn þegar það verður fyrir gagnrýni.
Þó að fólk með þennan lit í árunni meti mikils jákvæð, félagsleg samskipti, þá á það oft í erfiðleikum með að byggja upp langtíma sambönd. Orka þess er stundum tvístruð og því mistekst oft að ljúka mikilvægum verkefnum.
Ef liturinn er óhreinn þá tengist það óþolinmæði, sjálfselsku, litlu þoli gegn örvæntingu og tilfinningalegu ójafnvægi.