VERUND
ÁRA MANNSINS


Blár  litur í árunni


but-and-tilbaka.GIF - 1250 Bytes
but-and-tiladal.GIF - 1269 Bytes

toframadurstjarna.jpeg - 14665 Bytes


Blár er litur sem algengt er að finna í áru mannsins. Litbrigði og skírleiki eru afgerandi þættir, sem ákvarða mikilvægi þessa mikilvæga litar. Ljósblár er tengdur jafnvægi, friðsæld, sveigjanleika og bjartsýni, en dimmblár huglægri árvekni og stjórn á tilfinningum. Ljósbláan árulit er nánast alltaf að finna hjá þeim sem meta innsæi og samúð með öðrum. Dýpri tónar bláa litarins sjást oft í árum einstaklinga sem eru hnyttnir og sjálfsagaðir.
Blátt litaraft í áru er sérstaklega móttækilegt fyrir hugleiðslu- og slökunartækni sem virðist bókstaflega mynda bjarta orkutíðni og dreifa henni um kerfi árunnar. Hugleiðsluðferðir sem fela í sér friðsælar myndir af heiðbláum himni eru sérstaklega áhrifaríkar til þess að skapa ljósbláan lit í árunni og meðfylgjandi friðsæld. Aðferðir, sem byggjast á myndum af djúpum, bláum vötnum, hafa bókstaflega aukið djúpbláan lit í árunni og um leið bætt tilfinningalegan stöðugleika og sjálfstjórn.
Daufblár litur, hvar sem er í árunni, tengist neikvæðri streitu, svartsýni, vonleysi og óöryggi. Þunglyndir einstaklingar með sjálfsvígshvöt hafa undantekningarlaust svæði í áru sinni sem eru með óhreinum, daufbláum lit.
Ef daufblárri litaorku er veitt inn í áruna, þá gæti það orðið til þess að skapa enn meira þunglyndi. Árangurinn yrði slæm hringrás þráláts þunglyndis. Hver svo sem aflstöð fyrirbærisins er, þá er sambandið á milli litar árunnar og geðlagsins mikilvæg fræðileg vísbending til þess að komast fyrir og rjúfa hringrás þunglyndis.