VERUND
ÁRA MANNSINS


Bleikur  litur í árunni


but-and-tilbaka.GIF - 1250 Bytes
but-and-tiladal.GIF - 1269 Bytes

larisveinn.jpeg - 19362 Bytes


 

Bleikur er litur æsku, yngingar, næmni, hugsjóna og hæfileika. Þó svo að hann geti birst á meðal annarra lita sem eru daufir eða aflitaðir, þá er bleiki liturinn alltaf bjartur og geislandi. Hann er litur vonar og er yfirleitt stöðugur. Þeir sem tengjast honum bera með sér jákvæða sýn á lífið, fjölhæfni og sterka sjálfsmynd.
Þar sem hann er mjög algengur í árum aldraðs fólks, þá hefur hann oft verið tengdur langlífi. Eitt það áhrifamesta sem bæði menn og konur geta því gert sér til yngingar, er að vinna að því sem eykur við bleika litinn í áru þeirra.
Bleikan lit er oft að finna í miklu magni í áru þess fólks sem hefur áhuga á mannúðarmálum og fylgir því jafnan að það hefur náð framarlega á þeirri braut sinni. Fólk með þennan lit í áru sinni er líka oftast ósínkt á tíma sinn og starfskrafta í þágu þeirra málefna sem það hefur áhuga á. Það er yfirleitt hógvært í pólitískum skoðunum og hefur tilhneigingu til þess að beina áhuga sínum að varðveislu sögulegra minja og lista.