VERUND
ÁRA MANNSINS



Brúnn  litur í árunni


but-and-tilbaka.GIF - 1250 Bytes
but-and-tiladal.GIF - 1269 Bytes

bggdbloilb.JPG - 21960 Bytes


 

Brúnn litur í árunni er tengdur miklum áhuga á jörðinni og náttúrlegum auðlindum hennar ásamt persónuleikaþáttum eins og hagkvæmni, stöðugleika og sjálfstæði. Jarðfræðingar, vistfræðingar, fornleifafræðingar, garðahönnuðir og byggingaverkamenn eru nær alltaf með brún svæði í árum sínum, sem birtast annað hvort sem afmarkaðir blettir eða rammar utan um aðra liti.
Einstaklingar sem hafa verulega mikið af brúnum lit í árunni hafa venjulega áhuga á útiveru svo sem gönguferðum, skíðum, fjallaklifri og veiðum. Þeir eru oft af X-kynslóðinni og gengur vel í lífinu, en eru svolítið gjarnir á að tjá óánægju sína með rútínu daglegra starfa sinna á framabrautinni og lífið í úthverfunum. Þeir passa gjarnan vel upp á heilsu sína. Að puða í líkamsræktinni eða veggjabolta er á meðal þess sem þeir taka sér fyrir hendur eftir vinnu. Um helgar flýja þeir oft upp í sveit eða upp á fjöll. Þó þeir séu venjulega félagslyndir og vinsamlegir, þá meta þeir mikils einveru og frið.
Duglegir frumkvöðlar og þeir sem orðið hafa milljarðamæringar fyrir eigin atorku, eru undantekningarlaust með áberandi brún svæði í árum sínum. Framkvæmdastjórar sem hafa þennan lit eru venjulega ákveðnir, hagsýnir og sjálfstæðir. Þeir trúa á sjálfa sig og treysta mjög á innsæi sitt. Þó svo að þeir raði í kringum sig hæfileikaríkum undirmönnum og ráðgjöfum, þá eru þeir sjálfsöruggir, afgerandi og hæfir stjórnendur. Þó þeir séu ekki hvatvísir, þá eru þeir góðir í því að "hamra járnið á meðan það er heitt."
Eitt ber að varast í þessu sambandi og það er að rugla ekki brúna litnum saman við aflitun vegna sígarettureykinga. Sígarettureykur, hvort sem honum er andað að sér eða hann tekinn inn í gegnum yfirborð líkamans, heftir áruna og aflitar hana með óhreinni, gulbrúnni himnu.