|



|
Ljósgrænn litur í áru gefur til
kynna heilunarorku, viðleitni til sjálfsrýni, og aukna vitund, sérstaklega
varðandi alheims málefni. Einkennandi er fyrir árur
heilbrigðisstarfsfólks, lækna, hjúkrunarfræðinga, lækninga- og ráðgjafar sálfræðinga,
geðlækna, andlegra heilara og félagsfræðinga, að þær eru að miklu leyti ljósgrænar,
eða hafa að minnsta kosti í sér stór ljósgræn svæði. Áhugavert er að árur
heilara eru venjulega í mörgum grænum litatónum, nokkuð sem yfirleitt er
ekki að finna í árum annara læknenda eða heilsusérfræðinga. Lithverfur
ljósgrænn litur tengist líka dularfullum víddum vitundarinnar, og finnst
oft mikið af slíkum lit í árum töframanna. Eins og við er að búast er
algengt að finna ljósgrænan lit í árum nemenda sem eru að læra til
lækninga. Umhverfissinnar hafa líka gjarnan ljósgræn svæði í árum
sínum. Hjá aðilum sem standa framarlega í umhverfismálum birtist ljósgrænn
litur oft sem geislandi orkusvið sem umlykur allan líkamann.
Daufgrænn litur í áru
mannsins tengist svartsýni, innri baráttu og persónulegri ófullnægju.
Daufgrænn er líka litur öfundsýki, og má því ætla að
orðatiltækið að vera "grænn af öfund" tengist þessari staðreynd eitthvað.
Einstaklingar sem hafa stór daufgræn svæði í árum sínum hafa
tilhneigingu til þess að kvarta um óréttlæti og ósanngirni þess fólks sem
í kringum það er. Þeir eru fljótir að réttlæta eigin hegðun og kenna öðrum
um mistök sín, en þeir eru þó sjaldan fjandsamlegir. Reyndar eru
neikvæðar hvatir þessa litar oft duldar eða grafnar í
undirvitundinni. Í mörgum tilfellum virðist sú
óvild sem einstaklingarnir finna fyrir gagnvart öðrum, vera
yfirfærsla á neikvæðum tilfinningum þeirra gagnvart sjálfum sér. Þess
vegna er það kannski ekki undarlegt að einstaklingar sem eru með árur
að miklu leyti í daufgrænum lit, hafi tilhneigingu til þess að standa gegn
breytingum þegar þeir hafna neikvæðum vísbendingum þessa litar. Mjög
daufur grænn litur með gráum skuggablettum, er oft undanfari persónulegra
hörmunga
eða annars alvarlegs mótlætis,
þar á meðal líkamlegra veikinda.
|