VERUND
ÁRA MANNSINS


Gulur litur í árunni


but-and-tilbaka.GIF - 1250 Bytes
but-and-tiladal.GIF - 1269 Bytes

aura-yell.jpeg - 4899 Bytes


Gulur er sá litur sem einna algengastur er í áru mannfólksins. Hann sést oft mikið í árum fólks með háa greindarvísitölu, sem er félagslynt og áreiðanlegt. Birta litarins er oft einkennandi fyrir vitsmuni, og útbreiðsla hans í samræmi við félagslega hæfni og áreiðanleika persónunnar. Almenna reglan er sú að því bjartari sem liturinn er, þeim mun meiri er greindin, og því útbreiddari sem hann er því sterkari eru félagslegu hæfileikarnir.
Í áru þar sem gulur er yfirgnæfandi litur, þá segir staðsetning birtustigs mikið um hvernig eðli vitsmuna viðkomandi er nákvæmlega. Skærgulur litur í kringum höfuðið tengist óhlutbundinni hugsun og úrlausn vandamála, en skærgulur litur í kringum axlirnar og brjóstkassann tengist góðri samstillingu augna og handa og tæknilegri þekkingu.
Vísbending um almenna færni og félagslegan áhuga er það þegar í áru er mikið af gulum lit, og þá vísar það nánast alltaf til eiginleika eins og áreiðanleika, vingjarnleika og samúðar með öðrum. Mjög félagslyndir einstaklingar munu nær undantekningarlaust sýna útbreiddan gulan ljóma í ytri svæðum árunnar.
Sambland góðrar greindar og sterkra félagslegra hæfileika endurspeglast í áru sem er með björt innri lög af sterkgulum lit og útbreiddan ljósgulan lit í þeim ytri. Þetta munstur sést gjarnan í árum öflugra leiðtoga og áberandi aðila í samfélaginu. Samsetning einkenna þessara lita virðist veita þeim bestu blöndu huglægs innsæis og þeirrar félagslegu hlýju sem nauðsynleg er til þess að hafa áhrif á fólk og koma fram breytingum. Þessir einstaklingar hafa sérstaka hæfileika til þess að tengja saman stöðu mála og gera sér grein fyrir niðurstöðum þess. Rannsóknir á pólitískum frambjóðendum hafa sýnt að árangur kosningabaráttu mátti segja fyrir með allmikilli nákvæmni með því einu að gera einfalda könnun á litasamsetningu og formum í áru viðkomandi frambjóðanda.
Deyfð og herpingur í ríkjandi gulum lit áru gefur venjulega til kynna mjög streitufullt ástand sem bendir ákveðið til neikvæðra áhrifa í vitsmunalegri starfsemi og félagslegum viðbrögðum. Hindrun í bóklegu námi eða félagsleg barátta, mikið álag við að ná árangri, missir félagslegrar stöðu, og átök við fólk, hefur óhjákvæmlega áhrif á áruna og dregur úr birtu hennar. Ef leyst er úr slíkum vanda þá nær áran að jafnaði aftur sinni fyrri birtu og útþenslu.