VERUND
ÁRA MANNSINS



Rauð-fjólublár   litur í árunni


but-and-tilbaka.GIF - 1250 Bytes
but-and-tiladal.GIF - 1269 Bytes

bgredblu.JPG - 10500 Bytes


 

Rauðfjólublár er frekar sjaldgæfur litur í árunni, tengist heimspekilegum og óhlutbundnum áhugamálum. Fólk með þennan lit í árunni sinni er oft skapandi og listrænt. Það metur innsæislega þekkingu meira en álit sérfræðinga, sem það tekur eftir að eru oft ósammála innbyrðis. Það alhæfir gjarnan og einbeitir sér að mörgum meginatriðum frekar en tilteknum staðreyndum eða fullyrðingum sem byggðar eru á tölfræðilegum upplýsingum, sem það hefur tilhneigingu til þess að vantreysta.
Þó það álíti venjulega efnislega hluti ekki vera númer eitt í lífinu, þá virðist það eiga auðvelt með að auðgast. Fólk með þennan lit í árunni er að jafnaði yfir meðallagi í greind, og býr yfir mikilli orðfimi. Það krefst nær alltaf virðingar frá jafningjum sínum, og kemur sér venjulega fyrir í þægilegum embættum sem veitir þeim frelsi til þess að sinna persónulegum áhugamálum sínum.
Rauðfjólublár litur er oft yfirgnæfandi í árum presta, heimspekinga og hugsuða. Hann er mjög stöðugur litur og aflitast mjög ógjarnan.