VERUND
ÁRA MANNSINS



Rauður litur í árunni


but-and-tilbaka.GIF - 1250 Bytes
but-and-tiladal.GIF - 1269 Bytes

bgpinkswrl.JPG - 7531 Bytes


 
Rauður litur í áru er að jafnaði skyndileg birting eða frekar lítið en þétt litasvæði. Hann tengist oft hvatvíslegri hegðun og sterkum tilfinningum, þar á meðal skyndilegri reiði. Líkt og að "verða grænn af öfund", þá kann setningin "að sjá rautt" í merkingunni að reiðast, að hafa beina tengingu við áruna. Ofsaleg rauð litasvæði í árunni sem merki um reiði, gætu stýrt athygli okkar, annað hvort meðvitað eða ómeðvitað, sem svo yrði að huglægri tengingu.
Þó roðablossar í árunni séu yfirleitt skammvinnir, þá geta rauðar rendur vafist í áruna sem tiltölulega föst merki um athafnasemi er stefndi að stjórnlausri afleiðingu. Í rannsóknum hefur það sýnt sig að rauð strik birtust iðulega í árum manna sem voru oft móðgandi eða höfðu verið sakaðir um ofbeldisglæpi. Rauðar rákir sáust líka mjög oft í árum unglinga sem sýndu af sér frekju.
Rannsóknir á nemendum hafa líka sýnt að greinilegt samband var á milli rauðra svæða í áru og þörfinni á spennu og ævintýrum, eins og það er skilgreint í sálrænum prófum. Rauð svæði tengdust líka eirðarleysi og áhættuhegðun. Þó að rauði liturinn fyndist yfirleitt lítið í árum nemanna almennt, þá var ekki óalgengt að sjá hann í árum karlkyns nemenda sem stunduðu mikið íþróttir.