|



|
Í regnbogaáru er hægt að
sjá flesta liti litrófsins. Hún er samsett úr margvíslegum litum, oft í
mjúkum tónum, sem mynda samstæðan regnboga sem umlykur annað hvort allan
líkamann eða hluta hans, eins og t.d. höfuð og axlir. Hún er gjarnan björt
og víðfeðm, og gefur til kynna fjölbreytta samsetningu margra jákvæðra
þátta, greind, manngæsku, samfélagsleg áhugamál, innsæi, heiðarleika,
örlæti, bjartsýni og meðvitund um sjálfan sig. Sá sem er með með mjög
bjarta regnbogaáru hefur flest það besta úr öllum heimum, til brunns að
bera. Í heildina eiga slíkir aðilar venjulega góðri velgengni að
gegna á starfsferli sínum og í einkalífi. Margir miklir leiðtogar og
umbótasinnar í dag eru með regnbogaáru. Nýjar vísbendingar, sem byggðar
eru á aðferð til þess að reikna aftur í tímann, hafa komið fram um að
sumar frægustu persónur mannkynssögunnar á liðnum öldum, þar á meðal
William Shakespeare og Georg Washington, hafi verið með
regnbogaárur. Um leið og regnbogaáran gefur yfirleitt til kynna
fjöldamörg eftirsóknarverð persónueinkenni, þá sést líka að hún er
sérstaklega viðkvæm fyrir ójafnvægi og litabreytingum. Deyfð, sem
venjulega veikir flestar litasamsetningar í öðrum árum, er sérstaklega
skaðleg regnbogaárunni. Hún er líka mjög viðkvæm fyrir skyndilegum
litabirtingum, sérstaklega rauðum, sem geta tímabundið raskað reglulegu
munstri hennar.
|