VERUND
BRANDARI DAGSINS
10
Tilbaka Til aðalsíðu
|
|
Hún snýur sér að einum afgreiðslumanninum og segir: Ég ætla að kaupa þetta sjónvarp þarna. Því miður, segir afgreiðslumaðurinn, en við afgreiðum ekki ljóskur. Hún brást reið við og strunsaði út úr versluninni. En svo ákvað hún að þetta gæti ekki gengið, sjónvarpið skyldi hún ná í. Hún setti því á sig dökka hárkollu til þess að fela ljóskusvipinn. Fór hún síðan í fyrrgreinda verslun og óskaði enn eftir að kaupa umrætt sjónvarp. Því miður, sagði afgreiðslumaðurinn aftur, við bara afgreiðum ekki ljóskur. Aftur sneri hún tilbaka fjúkandi reið. Ákvað hún nú að dulbúast algerlega, setti á sig alskegg, klippti af sér hárið, klæddist jakkafötum og setti á sig bindi og hatt. Nú skyldu þeir sko ekki sjá að hún væri ljóska. En allt fór á sömu leið, afgreiðslumaðurinn tilkynnti henni að þeir afgreiddu ekki ljóskur. Þá þraut hana loks þolinmæðin og spurði afgreiðslumanninn: Ég var búin að dulbúa mig mjög vandlega, svo þið gætuð ekki séð að ég er ljóska. Hvernig fóru þið að því að vita það? Af því að þú bentir alltaf á örbylgjuofninn, svaraði afgreiðslumaðurinn.
|