VERUND
BRANDARI DAGSINS

17 



 

Tilbaka   
Til aðalsíðu

 

 

 

Tilbaka    
Til aðalsíðu

 

Það var á stórri bjórráðstefnu í Amsterdam. Að kvöldi eins dagsins ákváðu allir forstjórar bjórfyrirtækjanna að skreppa á krá og fá sér einn "öllara." Forstjóri Budweiser pantaði sér einn Bud að sjálfsögðu, forstjóri Miller pantaði Miller ljósan, og Heineken forstjórinn Heineken bjór, og þannig gekk það áfram koll af kolli, hver forstjóri pantaði sér bjór sinnar verksmiðju.

En svo kom að því að þjónustustúlkan spurði Arthur Guinness hvað hann vildi fá að drekka og öllum til mikillar undrunar þá bað hr. Guinness um kók.

"Af hverju pantar þú þér ekki einn Guinness bjór," spurðu félagar hans undrandi.
"Nah," sagði hr. Guinness, "ef þið ætlið ekki að drekka bjór strákar, þá ætla ég ekki heldur að gera það."