VERUND
BRANDARAR
18
|
|
Frá
því var skýrt í útvarpi í Bandaríkjunum nýlega að í miðskóla í Oregon
hefði komið upp sérkennilegt vandamál. Margar stúlknanna í skólanum voru
farnar að nota varalit og báru hann á sig inni á á klósettinu. Það var svo
sem í allt lagi, en eftir að þær höfðu borið litinn á varirnar
þá gerðu þær það að venju sinni að þrýsta þeim á spegilinn og skilja eftir
sig fjöldan allan af kossaförum.
Skólastýran sá að við svo búið mátti ekki standa og
eitthvað yrði til bragðs að taka. Hún kallaði því allar stúlkurnar inn á
klósettið þar sem þær hittu fyrir húsvörðinn. Hún útskýrði fyrir þeim að
þessi kossaför væru farin að skapa mikið vandamál fyrir
hreingerningafólkið, sem varð að þrífa spegilinn á hverju kvöldi. Til þess
að sýna þeim hversu erfitt það var, þá bað hún húsvörðinn að þrífa
spegilinn. Hann náði í langan þvottakúst, dýfði honum ofan í klósettið og
þreif síðan kossaförin af með honum…
Síðan hefur ekki eitt
einasta kossafar sést á speglinum.
|
||
|
|
|||