VERUND
BRANDARI
DAGSINS
|
|
Tveir gamlingjar, maður
og kona, sitja í ruggustólunum sínum á elliheimilinu. "Ég
þori að veðja við þig um að þú getur ekki giskað á hve gamall ég er,"
segir hann. "Og
ég veðja við þig um að það geti ég," svarar
hún. "Jæja,"
svarar hann, "ég veðja við þig 5000 krónum að þú getur ekki giskað á
það." "Allt
í lagi," svarar hún, "ég tek veðmálinu." "Stattu
upp." Hann
stendur upp og hún virðir hann vandlega fyrir sér, frá toppi til
táar. "Og
snúðu þér nú við," segir hún og virðir hann jafn vandlega fyrir sér og
áður. "Snúðu
þér nú við aftur … og taktu niður um þig buxurnar," segir
hún. Hann
gerir það og hún virðir hann fyrir sér frá toppi til
táar. "Þú
ert 86 ára gamall," segir hún svo. Hann
verður alveg orðlaus. "Ja,
hver fjandinn, kona, það er rétt hjá þér, ég er 86 ára gamall. Hvernig
fórstu að því að sjá það út?" Hún
ruggar sér í stólnum og glottir: "Þú sagðir mér það sjálfur í gær!"
|