VERUND
BRANDARI DAGSINS

23

Tilbaka     Til aðalsíðu

 

 

 


 

Tveir félagar fóru út að veiða skógarbirni. Á meðan annar þeirra varð eftir í veiðikofanum, fór hinn út að leita að björnum. Hann fann brátt einn risastóran, skaut á hann en náði aðeins að særa hann. Bálreiður björninn stefndi nú áttina að honum á harða hlaupum, svo hann fleygði frá sér rifflinum og tók á rás í áttina að skógarkofanum, eins hratt og fætur toguðu. Þó hann hlypi hratt þá var ívið meiri skriður á birninum og hann dró óðum á hann. Rétt í því að veiðmaðurinn náði dyrum kofans, þá datt hann kylliflatur um þröskuldinn. Björninn, sem var kominn of nærri honum til þess að geta stöðvað sig nógu fljótt, datt og rúllaði yfir hann inn í kofann.

Maðurinn spratt á fætur, lokaði kofahurðinni hið snarasta og kallaði til vinar síns sem var enn inni í kofanum:

"Fláðu þennan á meðan ég fer og næ í annan!"

 

 


           Tilbaka    Til aðalsíðu