VERUND
BRANDARI DAGSINS

26

Tilbaka     Til aðalsíðu

 

 

 


 Stjáni og Nonni eru út á golfvelli þegar Stjáni verður fyrir því að slá boltann út fyrir brautina. Þegar þeir eru að leita að boltanum, rekur Stjáni augun í ljósku sem er að gera þarfir sínar á bak við runna. Hann togar Nonna með sér á bak við tré og bendir honum á hvað er að gerast.

"Þetta er ótrúlegt," segir Stjáni. "Svona falleg kona að gera þarfir sínar úti skógi."
"Jebb," segir Nonni, "og ég þori að veðja að hún mun ekki einu sinni þrífa á sér afturendann þegar hún er búin."

Stjáni verður stórhneykslaður.

"Það kemur ekki til mála! Svona falleg kona myndi aldrei haga sér svo ósiðlega."

"Víst," segir Nonni, "ég get fullyrt það að hún mun ekki þrífa sig á eftir."

"Hvernig veistu það," spyr Stjáni.

"Ég bara veit það," svarar Nonni. "Og ég er reyndar svo viss um það að ég skal veðja við þig 5000 kalli upp á að hún mun ekki þrífa á sér afturendann."

"Ég tek því veðmáli," segir Stjáni, fullviss um að hann hafi réttar fyrir sér.

En þá gengur Nonni allt í einu út fyrir tréð og hrópar:

"Hey, þú þarna! Hvað ert þú eiginlega að gera?!" 

 


           Tilbaka    Til aðalsíðu