VERUND
BRANDARI
DAGSINS
|
|
Kona kemur til læknisins
með 16 ára dóttur sína. "Jæja,
frú Jóna," segir læknirinn, "hvert er
vandamálið?" "Það
er varðandi dóttur mín, hana Döggu, hún er alltaf að fá þessa fíkn í
vissar matartegundir, fitnar og er stöðugt með ógleði á
morgnana." Læknirinn
skoðar Döggu vandlega og snýr sér svo að móðurinni og
segir: "Ja,
ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að segja þér þetta, en málið er það að
Dagga er ófrísk – ég giska á að hún sé komin 4 mánuði á
leið." "Ófrísk?!"
svarar móðirin, "það getur ekki verið. Hún hefur aldrei nokkurn tíma verið
skilin ein eftir með karlmanni! Er það nokkuð,
Dagga?" "Nei,
mamma," svarar Dagga. "Ég hef ekki einu sinni kysst
karlmann!" Læknirinn
gengur út að glugganum og starir rannsakandi út um hann. Það líða
nærri fimm mínútur án þess að hann segi nokkuð, svo móðirin
spyr: "Er
eitthvað að þarna úti, læknir?" "Nei, í rauninni ekki," svarar hann. "Bara það að þegar svona nokkuð gerðist síðast þá birtist stjarna í austrinu og þrír vitringar komu yfir hæðina. Það er sko á hreinu að ég ætla ekki að missa af því núna!"
|