|
|
Ljóska kemur inn í bókasafn, gengur upp að borði
bókavarðarins og segir: "Ég ætla að fá hamborgara, franskar og
kók." Bókavörðurinn horfir í fyrstu hissa á hana en segir
svo: "Kæra fröken, sérðu ekki að þetta er
bókasafn?" Ljóskan
lítur í kringum sig hálf vandræðaleg og horfir á fólkið sem
situr við borðin í salnum. Svo hallar hún sér í áttina að bókaverðinum og
hvíslar (þið vitið, eins og fólk gerir á bókasöfnum): "Ég ætla að fá
hamborgara, franskar og kók."
|
|