VERUND
FRÉTTAPUNKTAR

but-tilbaka2.GIF - 973 Bytesbut-tiladalsidu2.GIF - 999 Bytes

Cilla Black hættir með sjónvarpsþátt:
Skilaboð frá látnum eiginmanni

Söngkonan Cilla Black, sem hefur í 18 ár stjórnað stefnumótaþættinum vinsæla Blind Date á ITV-sjónvarpsstöðinni, hefur nú ákveðið að hætta og snúa sér að öðrum verkefnum. Cilla segist hafa leitað til miðils áður en hún tók ákvörðunina og látinn eiginmaður hennar, Bobby Willis, sem dó úr krabbameini fyrir tveimur árum, sagt henni að nú væri rétti tíminn til að skipta um starfsvettvang.

"Áður en ég var sest niður hjá miðlinum sagði hann mér að ég væri hrædd og æst, en að Bobby segði að ég væri að gera hið eina rétta," segir Cilla. Hún sagði þetta vissulega stóra ákvörðun en viðurkenndi að ýmsar breytingar á Blind Date þættinum undanfarið hefðu ekki verið henni að skapi.

"Ég er hvergi smeyk," segir hin 59 ára gamla Cilla, sem heldur upp á 40 ára afmæli sitt í skemmtiiðnaðinum á næsta ári. "Framtíðin er svo björt að ég þarf að nota sólgleraugu."

Heimild: Fréttablaðið, 7. janúar 2003.

 

 
but-tilbaka2.GIF - 973 Bytesbut-tiladalsidu2.GIF - 999 Bytes