|
Ákvörðun Jens Lyberth, formanns
grænlensku heimastjórnarinnar, um að láta heila húsakynni stjórnarinnar,
hefur vakið hörð viðbrögð þar í landi. Á milli jóla og nýárs fékk Lyberth
konu til þess að koma og reka ill öfl úr húsinu og endurvekja hinn góða
grænlenska anda. Markmiðið var að sögn Lyberths að bæta samstarfsandann
meðal embættismanna heimastjórnarinnar. Heilarinn var eina og hálfa
klukkustund að heila húsið og var hún þess fullviss að starf hennar hefði
bæði verið þarft og borið tilskilinn árangur. Heimild: Fréttablaðið, 8. janúar 2003.
|