|
Uppnumdir hestar í
Öxarfirði
6. febrúar var sagt frá máli sem átti eftir að vekja
mikla furðu og eftirtekt og að dómi margra þá afhjúpaði það berlega
hindurvitni okkar Íslendinga. Málið snerist um það að sjö hestar frá bænum
Þverá í Öxarfirði hurfu sporlaust og stóðu allir ráðalausir yfir
því. "Það er engu líkara en þyngdarlögmálið hafi upphafist og hestarnir
svifið á braut eða þá að jörðin hafi gleypt þá," sagði Kristján
Benediktsson bóndi, sem var eigandi hestanna. Þetta voru þrír góðir
reiðhestar, tvær hryssur og tvö trippi. Er talið að hestarnir hafi horfið
um áramótin. Það voru margar skýringar leiddar fram. Var hrossahvarfið
rakið til huldufólks, geimbúa og jafnvel hrossaþjófa. Úti um allt land
voru menn að svipast eftir hestunum og draumspakt fólk lagðist undir
feld.
Hestarnir í
sláturhús? Mörgum vitringnum datt í hug að hestarnir hefðu einfaldlega
farið í sláturhús og að þar hefði einhver miður heiðarlegur maður fengið
200.000 kr. fyrir þá. En við nánari eftirgrennslan í sláturhúsum landsins,
hurfu menn frá þessari tillögu. Fleiri hestaeigendur risu þá upp og
sögðust hafa misst hesta í sláturhús og kröfðust þess að farið yrði að
mynda hesta fyrir aftöku. "Ég hef sjálfur orðið fyrir þeirri ógæfu að
missa besta reiðhestinn minn í sláturhús fyrir misskilning og aldrei
fengið bætur," sagði hestamaður í samtali við DV. Þá reis upp draumspök
kona á Selfossi, sem kvaðst hafa séð hestana lokaða inni í hlöðu. Því
miður reyndist það aðeins vera draumur. Fleiri draumspekingar höfðu
samband og kvaðst t.d. einn hafa séð hestana í gjá nálægt bænum. Engin
fannst gjáin svo að þessi hugmynd datt upp fyrir. "Ég hrökk upp með
andfælum og gat ekki sofið meira þá nóttina," sagði ung og berdreymin
fiskvinnslustúlka á Sauðárkróki, sem dreymdi að hestarnir hefðu farið yfir
í Vopnafjörð og lent þar á: "... skringilegum stað." Ekki fundust þeir
þar. Hestanna var leitað víða um sveitir og fjöll, bæði úr lofti og af
landi en allt kom fyrir ekki. "Skyggni var gott en pabbi sá ekki neitt,"
sagði sonur bóndans á Þverá eftir flugferð 15. febrúar. Það birti þó
heldur yfir mönnum þegar yfirlýsing kom frá Sálarrannsóknafélaginu um að
huldufók hefði tekið hestana en það ætlaði að skila þeim fljótlega. Þeir
væru við hestaheilsu og Þverárbóndi þyrfti ekki að óttast um þá. Bóndi var
hins vegar farinn að óttast um hestana og taldi líklegast að þeir væru
dauðir. Það var staðfest á miðilsfundi skömmu síðar. Endanleg
staðfesting kom þó ekki fyrr en 5. júní og kom þá í ljós að hrossin höfðu
hrapað til bana í gil ofarlega í fjallinu Sandfelli, sem er um 3 km frá
Þverá. Flestir skýrðu atburðinn þannig að hrossin hefðu fælst, hlaupið upp
fjallið, farið út á fönn og hrapað niður snarbratta hlíðina, um 100 metra.
En þó hrossin væru fundin, fannst mörgum málið ennþá mjög
skrítið.
Heimild: DV, 30. desember,
1987.
|