|
Hláturdraugur
Fullyrt er að draugur
gangi ljósum logum í nýju Aldamótahvelfingunni í London og geri gestum og
gangandi þar lífið leitt. Það er svipur Sir George Livesey, fyrrverandi
framkvæmdastjóra South Metropolitan Gas-fyrirtækisins, sem sagður er hafa
tekið sér bólfestu í hinni nýju byggingu, sem verið er að reisa í tilefni
af aldamótunum. South Metropolitan hafði áður höfðustöðvar sínar á sama
stað. Sir George lést fyrir 90 árum og starfsmaður Metropolitan segir
að hann hafi látið til sín taka í fyrirtækinu eftir það og nú hafa
starfsmenn í nýju hvelfingunni orðið hans varir. Fulltrúi fyrirtækisins
sem reisir hana sagði: "Fólk hefur heyrt hann
hlæja."
Heimild: Morgunblaðið 30.
apríl 1998.
|